Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1979, Blaðsíða 54

Ægir - 01.06.1979, Blaðsíða 54
Ef litið er fyrst aftur til ársins 1976, jókst heildarafli Bandaríkjanna það ár um 11%, eða í 2,5 milljónir lesta. Var þessu magni haldið á árinu 1977. Á sama tíma virðist afurðaverð hafa hækkað nokkuð stöðugt. Jafnframt þessu virðist svo sem þeir stofnar, er hættast voru komnir hafi rétt nokkuð úr kútnum. Ýsuafli undan Norð- austur-Atlantshafsströndinni jókst nokkuð og afli yellowtale flounder (flatfisktegund) sem hafði farið snarminnkandi á undanförnum árum hefur og aukist. Samhliða jókst þorskafli um 27%. Sam- svarandi árangur var sagður hafa náðst undan Kyrrahafsströndinni. Á hinn bóginn minnkaði afli útlendinga á Bandaríkjamiðum verulega eða í 1,7 milljón lestir, sem er milljón lestum minna en 1976 og einungis um helmingur þess hámarks, sem náðist 1974. Þó að sá tími sem liðinn er sé nokkuð skammur til að segja ákveðið til um áhrif hinnar nýju skipunar mála og um uppbyggingu stofnanna, hefur þróunin verið jákvæð fyrstu tvö árin og segja verður að aðgerðir hafi borið árangur. Niðurlag Hin nýja skipan mála er enn of ung til að hægt sé að draga fullkomnar ályktanir um framtíðar- þróun fiskveiða við Norður-Atlantshafið. Hér þarf að styðjast meira og minna við ágiskanir. Og þó að allar tölur og upplýsingar um neysluvenjur, ásamt yfirstandandi skipulagsbreytingum fiskiðn- aðarins svo sem aukin eftirspurn eftir smærri skipum með viðeigandi útbúnað og aukin vinnslu- geta til að sinna breyttum aðstæðum, gefi vissa ábendingu, eru fleiri atriði sem taka þarf tillit til, t.d. hversu fljótt - ef þá nokkurn tíma - hægt er að breyta venjum neytendans í markaðsþjóð- félaginu, sérstaklega ef leyft er að flytja inn þær fisktegundir, sem hann sækist eftir. Ennfremur þarf að taka til greina hversu fljótt hinum endur- reista fiskiðnaði Bandaríkjanna og Kanada tekst að nýta markaðsmöguleika þá sem opnast hafa og einnig hver áhrif „ný“ fiskveiðiríki, sem nú ráða yfir miklum auðlindum, en hafa lítt beitt sér að fisk- veiðum hingað til, eins og t.d. Nýja Sjáland og sum þróunarlandanna, muni hafa á hefðbundna útflutn- ingsmarkaði annarra þjóða. Ýmsar raddir hafa verið uppi hjá þeim þjóðum sem eru að byggja upp fiskiðnað, að ekki megi fara of geyst í sakirnar. Of hröð uppbygging fiskiskipaflota og leyfi til handa útlendingum til að flytja inn tækniþekkingu og fjárfesta í og byggJ3 upp fiskiðnaðinn geta orðið til þess að mark- miðinu um hagkvæmastan afrakstur fiskstofnanna verði seint náð, m.a. vegna þess að það getur tekið stofnana lengri tíma að ná sér. Þá er mögu- leiki á að ýmsir stofnar nái sér ekki að fullu, þ e- sumir kunna að verða undir í baráttunni við aðra sterkari. Þetta á sérstaklega við um þá stofna sem gengið hefur verið mjög nærri, t.d. síldina í austanverðu Norður-Atlantshafi. Svo virðist þó sem neyslu- og innkaupsvenjur hafi að einhverju leyti aðlagast breyttum aðstæðum nú þegar, og að menn sækist nú eftir nýjum fisk' tegundum eða afli þeirra gömlu annars staðar- Þannig virðist makríll hafa komið að nokkru í stað síldar í nokkrum Evrópulöndum, og Birds Eye fyrirtækið í Bretlandi segir að í stað þess að kaupa um 90% þorskshráefnisins frá Grimsby og Hull hafi þeir að undanförnu flutt um helming hráefniS" þarfarinnar inn, annaðhvort nýtt eða fryst og að ekki hafi orðið hráefnisskortur svo nokkru nenu- Það virðist samdóma álit þeirra sem vinna að útflutningsmálum fiskiðnaðarins að gjaldeyriS' markaðirnir, og þá sérstaklega gengi dollarans 1 framtíðinni, muni hafa mikil áhrif á einstaka þætti fiskiðnaðarins. Þannig hefur gengissig doH* arans t.d. haft þau áhrif, að innfluttar sjávar- afurðir verða dýrari á Bandaríkjamarkaði á meðan verð innlendrar framleiðslu stendur í stað. Gera má ráð fyrir að minnkandi framboð a heimsmarkaði, sem kann að vara á meðan stofnaf eru að reisa sig við, muni leiða til nokkurra verð- hækkana. Hafa þær raunar þegar orðið nokkran og leitt víða til nokkuð betri afkomu þrátt fyt'r aukinn kostnað. Hefur þessi þróun gert ríkiS' stjórnum kleift að minnka sumsstaðar fjárhagS' aðstoð við fiskiðnaðinn. Þó ber að hafa í huga 3 ótakmarkaðar verðhækkanir geta ekki orðið, þe fiskur verði af skornum skammti. Virðist meira a segja vera töluvert verðviðnám á lúxusafurðunn og nægir að benda á sölutregðu á rækju 1977 1 því sambandi. Á árinu 1977 veiddist heldur minna magn íheiifl' inum en 1976, en þrátt fyrir það jókst framleiðsla matfisks nokkuð og meira en fólksfjölgun nam- Þessi samdráttur heildaraflans er staðfesting á þeinj sveiflum er einkennt hafa síðasta áratug og ma rekja beint til útkomu hinna stærri veiða, ansjósuveiða Perúmanna. Þá má sjá nýjan orsaka vald þessara sveiflna á árinu sem er minnkan afli stórfiskveiðiþjóða á íjarlægum miðum. Á* 1 370 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.