Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1979, Síða 13

Ægir - 01.11.1979, Síða 13
 f’arna er um að ræða þröngan markað í litlu landi á greiðan aðgang til innkaupa frá Þýskalandi, rakklandi og Hollandi. Fiskneyslan er nokkuð J^'kil, um 18 kg. á mann og fullnægir eigin fiskifloti elmingnum af þörfmni fyrir bolfisk, hitt er innflutt °§ annað eins er innflutt af skelfiski. Viðskipti °^kar við Belga eru ekki mikil, en þau hafa farið VaXandi síðustu árin. Helstu vöruflokkarnir eru 'okkir til verksmiðjuframleiðslu, grálúða og síld. 'ns og áður er sagt er verð blokkanna frekar lágt Vegna samkeppninnar, en á öðrum tegundum er ^erð þar okkur hagstætt. Sem fiskútflutningsþjóð er okkur brýn nauðsyn á fylgjast vel með breytingum á mörkuðum, hvort ejdur er í Evrópu eða annars staðar, með þvi einu móti getum við vitað hvaða markaðir eru okkur hagstæðastir, ekki fyrir lítið magn sem afgreiða þarf með stuttum fyrirvara og selja má takmarkaðan tíma á uppsprengdu verði, heldur verðum við að geta metið hvar er hagstæðast heildarverð fyrir mikið magn til langs tíma. Til skamms tíma hefur verðlag á frystum fiski í Bretlandi og víðar í Evrópu ekki verið okkur jafnhagstætt og til dæmis í Banda- ríkjunum. Þarna hefur orðið breyting á, ekki hvað síst vegna veikleika bandaríska dollarans saman- borið við evrópska gjaldmiðla, en einnig hefur þessi breyting orðið vegna minnkandi framboðs og hækkandi fiskverðs í flestum Evrópulöndum á þeim fisktegundum sem eru helstu útflutningsvörur okkar og á það helst við um breska markaðinn. Með hækkuðu verði og meiri og bættri þekkingu á fryst- um fiski hafa gæðakröfur kaupendanna aukist og kröfur um bætta pökkun og meira og betur unna vöru orðið algengari. Fyrr á árum, er úthafstogarar flestra Evrópuþjóða lönduðu miklu magni af margra daga gömlum ísfiski, þurftum við ekki að óttast samanburð á ferskleika okkar framleiðslu við þessa vöru. Með tilkomu frystitogaranna og verk- smiðjuskipa og þekkingu á framleiðslu þeirra hafa kröfur kaupendanna um fiskferskleika ráðið æ meiru um verðið. Samanburðurinn við okkarfram- leiðslu er hvað ferskleika hráefnis snertir ekki eins hagstæður okkur nú eins og áður var. Þetta er atriði sem þarf rækilegrar athugunar við, ef við eigum ekki að verða eftirbátar annarra í vöruvöndun, í stað þess að vera í fararbroddi eins og áður var. Fiskur frystur um borð í veiðiskipi er alltaf fyrsta flokks hvað ferskleika snertir og við verðum að keppa við slíkan ferskleika í framleiðslu frystihúsanna okkar. Ef við fylgjum ekki ströngustu kröfum í vöruvönd- un getum við ekki vænst þess að ná hæsta verði, en hingað til höfum við gert okkur það að reglu að krefjast þess af viðskiptavinum okkar. Hvað snertir markaðshorfur fyrir frystar sjávar- afurðir - en frá sjónarmiði markaðs fyrir þær eru aðstæður í þessari grein einkum miðaðar við - er ekki annað sjáanlegt en útlitið sé okkur hagstætt, verði rétt á spilunum haldið af okkar hálfu, hvað snertir verndun og fullnýtingu fiskstofnanna, vönd- un framleiðslunnar og vakandi athygli beitt til að nýta þá markaði sem gefa okkur hagstæðast sölu- verð. ÆGIR — 641

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.