Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1979, Síða 14

Ægir - 01.11.1979, Síða 14
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur: Astand sjávar og fískstofna við Island Greinaflokkur: III. Ástand sjávar og loðnu Inngangur Hér birtist þriðja greinin í þessum flokki og fjallar hún um ástand sjávar á loðnuslóðum hér við land, loðnugöngur og loðnuklak. Hrygningarganga loðnunnar Sumarslóðir íslensku loðnunnar eru á mótum köldu og heitu hafstraumanna fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum, og þá kaldsjávarmeginn (3). Síðla vetrar gengur svo fullorðna loðnan að miklu leyti með straumamótunum í Austur-íslandsstraumi til að hrygna í hlýja sjónum fyrir sunnan land (hitastig u.þ.b. 6°C, selta u.þ.b. eða minni en 35.0%); 1. og2. mynd). Stundum gengur loðnan vestur með landinu allt í Faxaflóa, og stundum ekki nema að Alviðru- hömrum eða skemur (sjá t.d. skýrslur Loðnunefnd- ar 1977 og 1978 (4,5)). Bæði líffræðilegt ástand loðnunnar og umhverfisaðstæður eru taldar ráða hér um. Hrogn loðnunnar klekjast út á botninum og berast seiðin frá klakstöðvunum með straumi vestur og norður á uppvaxtarslóðirnar eins og fram kom í töflu í fyrstu grein (1), en taflan sýndi hlutfallslegan fjölda loðnuseiða á mismunandi slóðum hér við land 1970 - 1978. Taflan er birt hér aftur með ítar- legri upplýsingum (1. tafla). Uppvaxtarslóðir loðnuseiðanna eru uppsjávar í sumaryl, bæði á djúpmiðum og inni á íjörðum. Næstu árin leitar ungloðnan svo æ meira út í kalda sjóinn þar til kemur að kynþroska og hrygningar- göngu (3). Loðnan er þannig kaldsjávarfiskur, sem a.m.k. hér við land leitar í hlýrri sjó til hrygningar, og til að deyja síðan að mestu leyti. Kaldi sjórinn norðan úr hafi færir okkur því ekki aðeins búsifjar eins og hafísinn, heldur einnig nytjar eins og loðn- una. Ekki er þar með sagt að ísinn og loðnan fari saman og verður vikið nánar að því hér á eftir. Main spawning migration of capelin and temperature al 50 1,1 deplli in lcelandic waters in January - March 1977 (4). Loðnuseiði og ástand sjávar Athugum nú aftur niðurstöður seiðarannsókna 1970 - 1978 (1. tafla). Fyrstu tvö árin (1970, 197*' munu rannsóknirnar hafa verið ófullkomna1"- Miklu má þó muna um villandi niðurstöður þessi tvö ár verði talin til “góðra“ klakára án þess Þ° að dómur verði lagður á það hér. Eins og áður hefnr komið fram (1,2) þá áraði illaað vori í sjónum norö anlands þessi ár. Á árunum 1972 - 1975 reynd>st seiðamagnið vera mjög mikið (yfir 70% af heildaf fjölda loðnuseiða áranna 1970 - 1978) og seið>n voru einnig útbreidd um öll mið. Þá áraði vel ísj°n um norðanlands (1972 - 1975 í kalda sjónum °& 642 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.