Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1979, Page 16

Ægir - 01.11.1979, Page 16
3. mvnd. Hiiadrevfing á 50 m dýpi i Grœnlandshafi og í hafmu umhverfis ísland i ágúst - september 1979 (9). Temperature at 50 m depth in the Irminger Sea and in Icelandic waters in August-September 1979 (9). 1972 - 1974 í hlýja sjónum (1,2)). Seiðamagnið var svo aftur minna á árunum 1976 - 1978 þegar verr áraði í sjónum. Síðan 1969 hefur á ári hverju ástand sjávar verið kannað á íslandsmiðum síðla vetrar í meira eða minnamæli (2. tafla). Athuganir í febrúar 1979 i sjónum fyrir norðan land (6) og haflsinn s.l. vor (1979), og ástand sjávar almennt samkvæmt rannsóknum í vorleið- angri (7,8), lofuðu ekki góðu fyrir seiðin síðar um sumarið að óbreyttu ástandi. Niðurstöður seiða- rannsókna í ágúst (9) leiddu svo í ljós sæmilegt eða gott ástand loðnuseiða fyrir Vesturlandi og Norður- landi austur að Skjálfanda. Austarfannst mjöglítið af seiðum. Heitur sjór hafði einnig rutt sér braut austur móts við Kolbeinseyjarhrygg, en austar tók kaldsærinn við (3. mynd). Loðnuseiðin voru tiltölu- lega fá 1979 (1. tafla) miðað við góðu árin 1972 - 1975, en útbreiðsla lífvænlegra seiða var þó miklu meiri en á mögru árunum 1976 - 1978(1977og 19? sérstaklega), þótt ekki jafnaðist hún á við dreifing' una 1972 - 1975. Árangur loðnuklaks 1979 var þvl þrált fyrir hlutfallslega litinn heildarfjölda loðnU' seiða dœmt sæmilegt eða gott, eins og fyrr sagð'- Orsök og afleiðing Ef að líkum lætur felst fylgnin milli ástands sjávaf og hlutfallslegs fjölda loðnuseiðanna í áhrifu01 seltulitla kald- eða pólsjávarins yfirleitt á uppvaxt arslóðum seiðanna, og einnig á innstreymi hlýsjáv°r að sunnan á norðurmið og vestur með Austur Grænlandi. Einnig skal bent á að kaldi og seltuW • sjórinn flýtur ofan á söltum hlýsjónum á norður miðum þegar báðir mega sin, og gæti þá einu g1* hvort klak hefur heppnast fyrir sunnan land og s^1 in borist norður með straumi eða ekki. Otbreiðs 644 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.