Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1979, Síða 27

Ægir - 01.11.1979, Síða 27
að fara í saumana á forsendunum hverri fyrir sig, Sagnrýna þaer og breyta og sjá hvort meginniður- staðan breytist að marki. Á þennan hátt má að veru- legu leyti nálgast skekkjumörk niðurstöðunnar. Hér á eftir verður fyrst gerð nánari grein fyrir reiknilíkaninu og meginforsendum þess. Því næst er Qallað um grunnniðurstöðu útreikninganna og hún ^orin saman við núverandi veiðistefnu. Þá verður Vlkið að veikustu forsendum útreikninganna, þeim breytt og áhrif þess á niðurstöður athugaðar. Síðan er íhugað, hver þróunin yrði, ef fylgt væri megin- n'ðurstöðu þessara reikninga um stefnumörkun Varðandi sókn. Er þá m.a. tekið tillit til óhjákvæmi- legra frávika frá þeirra sókn er ráðgerð væri, sömu- le‘ðis nokkurra sveiflukenndra þátta í ytri skilyrð- Urn- Að lokum er fjallað um hvaða lærdóma megi ^raga af þessum tilraunum og hvaða atriði virðast burfa frekari athugunar við. Ennfremureru útreikn- lngar mínir bornir saman við aðrar hliðstæðar nlðurstöður. Gerð reiknilíkansins Reiknilíkön, eins og það sem hér er skýrt frá, eru n°tuð til að lýsa þróunarferli. Þau geta verið ein- vörðungu lýsandi, þ.e.a.s. stærðir og þættir er ráða framrásinni eru þá fyrirfram gefnir. í lýsandi líkani af fiskveiðum væru þannig allar sóknarstærðir til- Steindar frá ári til árs. Reiknilíkanið sýndi síðan af- !eiðingu slíks sóknarferlis: afla, afkomu, stofnstærð- ir og fleiri atriði á hverju ári reiknitímabilsins. En slík líkön má einnig gera þannig úr garði, að þau leiti sjálf að þeim stjómstærðum (í okkar tilviki sókn o.fl.), sem skila bestum árangri í einhveijum skilningi. Nefnist þá reiknilíkanið hámörkunarlíkan. Sú reikni- tækni, sem beitt er í hámörkunarlíkönum, er tiltölu- lega ný af nálinni og einungis unnt að beita henni með hjálp nútíma tölvutækni. Reiknilíkan það, sem hér verður kynnt, er há- mörkunarlíkan: því er ætlað að finna það sóknar- magn í íslenska þorskstofninn á komandi árum, sem leiðir til hámörkunar á heildarframlagi þorskút- vegs til þjóðartekna reiknuðu á núvirði, eins og nán- ar verður skýrt síðar. Mynd 1 gefur yfirlit yfir helstu þætti útreikning- anna á hverju ári áætlunartímabilsins. Þannig er gengið út frá ákveðinni stærð þorskstofnsins í árs- byijun. Stofnstærðin er tilgreind sem fjöldi fislca í hverjum aldursflokki. Hluti hvers aldursflokks verður sjálfdauða og annar hluti er veiddur. Afgang- urinn gefur stofnsamsetninguna í árslok, sem þá verður grundvöllur útreikninga á næsta ári. Þó þarf fyrst að bæta nýliðum við. Ferill þorskungviðs er flókinn og eru honum ekki gerð skil í þessu líkani. Nýliðun miðast því við 3ja ára aldur, en þá fer fisk- anna fyrst að gæta í veiðinni, enda miðast upplýs- ingar fiskifræðinga um nýliðun við hið sama. Fiskveiðidánarhlutföllum er lýst með svonefnd- um fiskveiðidánarstuðlum, en þeir ráðast af tvennu: HtjncH: yfirUt yfir reiknUikanub ÆGIR — 655

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.