Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1979, Side 33

Ægir - 01.11.1979, Side 33
Vera 600 þús. tonn til þess að nýliðun sé í hámarki, en þá sé hún ríflega meðalnýliðun áranna 1955- 1^75 eða um 230 millj. fiska. A mynd 2 kom fram, að þessi (dökkleita) nýlið- Unarforsenda hefur sitt að segja um núverandi Þorskveiðistefnu. í stuttu máli það, að stofninn ntuni deyja út á nokkrum áratugum. Ferlar 2 á mynd 4 sýna á hinn bóginn, hvemig æskileg- ast virðist að haga sókninni m.v. nýliðunarfor- Sendu skv, mynd 7. Þá er talið nauðsynlegt aðdraga enn meir úr sókn en grunnniðurstaða bendir til. Á Þetta þó einungis við fyrstu árin. Eins og áður sagði, liggja engin vísindaleg rök fyrir því að telja seinni nýliðunarforsendurnar lík- le8ri en þá sem notuð er í grunnforsendum, en hugs- anlega fylgdi því minni áhætta. Náttúrlegur dánarstuðull Náttúrlegir dánarstuðlar hafa mikil áhrif bæði á stofnstærðarmat og áætlunarreikninga sem þessa, er hér er greint frá. (Þeir, sem ekki er hugtakið dánarstuðull” tamt, mega lesa í þess stað ”dánar- l’lutfall” án verulegrar hættu á misskilningi). Heilbrigð skynsemi segir, að náttúrlegir dánar- riuðlar hljóti að vera háðir aldri ftsksins og árferði °8 þar með breytilegir frá ári til árs. Rannsóknireru þó ekki nægilegar til þess ákvarða þessa breytileika- Þ®tti. Einungis eru til meðaltalstölur um þessa óánarstuðla og teljast þeir vera 0,2 á ári fyrir alla a*durshópa þorsks frá 3ja ára aldri. Þetta þýðir að um '8% hvers árgangs deyr náttúrlegum dauðdaga, Seu fiskveiðar engar. En það er e.t.v. ekki hin algildi sannleikur um náttúrlega dánarstuðulinn sem máli skiptir, heldur a|trif hugsanlegrar skekkju á meginniðurstöðuna. Á Itinn bóginn er ekki auðvelt að benda á það í hvaða att skekkjan getur legið, jafnvel þótt einungis sé leitað aÓ breytingu þessarar forsendu í þá átt að rökstyðja ^eiri sókn en grunnforsenda leiðir til. Hærri nátt- Urlegur dánarstuðull þeirra aldurshópa, sem eru ^otnnir að fullu inn í veiðina, og lægri hjá þeim, sem ■'tt eru veiddir, ætti þó að öðru óbreyttu að gera 'nikla sókn fýsilega. Því var gerð tilraun með að telja náttúrlegan óánarstuðul hrygningarfísks (þ.e. 7 ára og eldri) Vera 0,25 á ári, en hjá 3ja og 4ra ára 0,10, en dánarstuðli ^ °g 6 ára þorsks var haldið óbreyttum við 0,2 á ári. Eerlar 3 á mynd 4 sýna endanleg áhrif þessarar breyttu forsendu á grunnniðurstöðu. Er þá búið að breyta forsendum um stofnstærð í ársbyrjun 1978, um meðalfískveiðidánarstuðla 1974-1977 svo og um meðalnýliðun á þann hátt er samræmist tilgát- unni um náttúrlegu dánarstuðlana. Enn sem fyrr er grunnniðurstaðan sýnd til samanburðar. Ekki verður séð að umræddar breytingar forsendna valdi neinni umturnun á grunnniðurstöðu um sókn. 4. Mælikvarði á sókn og friðunaraðgerðir Ein helsta einföldun, sem gerð er í þessum reikn- ingum, felst í því, hvernig sókn er mæld. Engin ein- hlít skilgreining eða mælieining er tiltæk á orðinu sókn. Einkum eru tvær leiðir færar: I fyrsta lagi má mæla sókn út frá líffræðilegum afleiðingum hennar, þ.e.a.s. álagi sóknarinnar á fiskstofninn, en það álag mælist með fiskveiðidánarstuðlum. Skv. þess- ari aðferð er sókn mæld sem vegið meðaltal af fisk- veiðidánarstuðlum hinna einstöku árganga. í öðru lagi má hugsa sér sókn sem heildarmælikvarða á út- hald á miðunum. Er þá gjarnan miðað við eina skipa- og veiðarfærategund, oftast (skut)togara með botnvörpu. Sókn er þá t.d. mæld í togtímum. Verður þá að umreikna afköst annarra báta og veiðarfæra yfir í samnefnarann: togara með botn- vörpu. Hvorug þessara aðferða við mælingu á sókn er gallalaus. Með þeirri síðamefndu er örðugt að meta áhrif breyttrar sóknar á fiskveiðidánarstuðla, m.ö.o. líffræðilegar afleiðingar sóknarbreytinga. Á hinn bóginn er sú sóknarmæling áþreifanleg og auðveld- ara að meta tengsl útgerðarkostnaðar og sóknar- magns. Fyrri leiðin hefur þann meginkost að vera í beinum tengslum við framvindu fiskstofnsins. En örðugra er að heimfæra sóknarbreytingar skv. henni uppá raunverulegt úthald og kostnað því samfara. Athuganir hafa sýnt, að báðar sóknarmælingarn- ar fylgjast að: á milli þeirra eru talin bein hlutfallsleg tengsl. (Þessi tengsl em þó ekki alltaf fyrir hendi t.d. ekki hjá torfufiskum eins og síld og loðnu.) I reiknilíkani mínu er fyrri sóknarmælingin lögð til grundvallar, en vegna áðurnefndra tengsla ætti að vera leyfilegt að túlka niðurstöður um hlutfallslega sóknarbreytingu uppá samsvarandi magnbreytingu í úthaldi. Á hinn bóginn verður ekkert sagt um, hvernig slík sóknarbreyting ætti að skiptast á ein- stakar fiskiskipa- og veiðifærategundir. Þá má held- ur ekki draga þá ályktun, að flotastærðin, sem nota þarf til veiðanna, sé í beinu hlutfalli við sóknar- magnið. Leiði t.d. minni sókn til aukins afla á sókn- areiningu, þá er ljóst að flotinn má ekki minnka að sama skapi til þess að unnt sé að draga aflann að landi. Þessar tvær athugasemdir eiga reyndar einnig ÆGIR — 661

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.