Ægir - 01.11.1979, Qupperneq 58
ÁTÆKJAMARKAÐNUM
Atlas Fischfínder 791 DS
Þýzka fyrirtækið Krupp Atlas-Elektronik í Bremen
hefur um árabil framleitt dýptarmæla með sam-
byggðum skrifara og fisksjá (myndskjá), sem hafa
samnefnið Atlas Fischfinder 700. Helztu gerðir
700-línunnar eru 720, 740, 780 og nú á allra síðustu
árum gerð sem nefnist 790 DS.
Nú er nýkomin á markaðinn ný lína, sem nefnist
Atlas Fischfinder 701 ogerumþrjármegingerðirað
ræða, þ.e. 721, 781, og 791 DS. Hérverðureinkum
fjallað um stærstu og fullkomnustu gerðina, 791 DS,
en mælar af þeirri gerð eru komnir í þrjá skuttogara
hérlendis, þ.e. í Guðbjörgu ÍS-46, fyrir rúmu ári
síðan, og nú á þessu ári í Þorlák ÁR-5 og Elínu Þor-
bjarnardóttur ÍS-700. Fyrirrennari þessa mælis er
790 DS og fyrsti mælirinn af þeirri gerð hérlendis
var settur í skuttogarann Engey RE-1 árið 1977 ogá
s.l. ári var settur mælir af sömu gerð í rannsóknar-
skipið Hafþór RE-40.
Mynd 1: Sendigeisli óháður veltingi skips
686 — ÆGIR
Atlas Fischfinder 791 DS (og einnig 790 DS)
hefur mun meiri sendiorku og langdrægi en fyrn
gerðir frá Atlas og er búin nýrri gerð botnspegils og
tölvueiningu (Digital Stabilization Electronics Unit)
til stjórnunar á sendigeisla. Hin nýja gerð botnspeg-
ils, sem er úr PZT/ Keramik, er sett saman úr 51 ele-
menti, sem skipt er í sjö hópa. Sérhver hópur ele-
menta er tengdur aðskildum sendi- og móttökurás-
um, sem stjórnað er af tölvueiningunni. Útkomaner
ekki aðeins geisli, sem hefur litlar síðulykkjur (side
lobes), heldur og skapast möguleiki að sveigja geisl-
ann þverskips án vélrænnar hreyfingar botnspegils-
ins og halda stefnu hans stöðugri þótt skipið velti
(mynd 1). Einnig er möguleg handvirk stjórnun
geisla frá bakborða yfir í stjórnborða, ef leitaðert.d.
í köntum.
í töflu 1 hér að neðan eru helztu tæknilegar upplýs'
ingar um botnspegil, sendiorku, langdrægi o.fl-:
Tafla 1: Gerð botnspegils SW 6029
Tíðni 33 KHz
Sendiorka 4 KW
Geislavídd 6° x 8° eða 6° x4°
Handvirkur snúningur ... -í- 15° ... 0° ...+ 15°
Stærð sendiflatar 480 x 640 mm
Þyngd botnspegils 160 kg
Hámarks botndýpi 5000 m
Aðgreiningardýpi (stór fiskur) 1000 m
Sjálfur mælirinn (mynd 2) er, eins og fyrri gerðir
Atlas Fischfinder mæla, sambyggt tæki með skrif-
ara og myndskjá; skrifarinn í efri hluta hússins og
myndskjárinn í neðri hluta þess. Stjórnhnappa1"
eru allir samankomnir hægra megin við skrifara og
skjá, en á mælum 700-línunnar eru þeir á neðri
hluta hússins, til hliðar og neðan við myndskjáinn.
Myndskjár er mun stærri, eða 33 cm (hornalína).1
stað 21 cm (240 cm2) á mælum 700-línunnar.
Botnstækkun svo og minniseining fyrir myndskja
(stöðug mynd) eru innbyggð í húsið, en í 700-lín'
unni eru þessar einingar viðbótarbúnaður. Botn-
stækkunin (og “miðsjávarstækkun“) kemur bæði
fram á skrifara og myndskjá. Stækkun við botn er
möguleg í þremur þrepum, og nær yfir 32 mm af
pappírsbreidd, og stækkun miðsjávar einnig í þrem-
ur þrepum, og nær yfir 64 mm af pappírsbreidd-
Ljóstöluaflestrar eru innbyggðir í mælinn og eru
gluggar fyrir dýpissvið, botndýpi, auk glugga fyrir