Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1981, Page 13

Ægir - 01.09.1981, Page 13
Mynd 4. „Himnakrókurinn". 1 sumar setti ,,Dantrawl“ upp síldartroll fyrir s®nska tvílembingatogara, ,,Toron“ og >>Ganthi“, en hvor um sig hefur 2.500 ha. aðalvél. ^r betta síldartroll, sem þeir „Dantrawls menn“ ^alla ,,Clupea“, en það er fyrsta orðið í latneska heitinu á síld, með kevlar línum eins og áður er 'ýst, þ.e. fremsti hluti trollsins er með stórum möskvum úr kevlar, svo og kjaftlínurnar. Sam- kvæmt síðustu fréttum tóku þessir tveir togarar Oögur reynsluhöl í kringum 20. ágúst s.l. og var s’ldaraflinn milli 40 og 50 tonn í hali. Á sömu slóðum og tima fengu aðrir sambærilegir tví- 'embingatogarar 20 til 25 tonn í hali. Toghraði freirra ,,Toron“ og ,,Ganthi“ jókst um 1 sjómílu ^eð tilkomu hins nýja kevlartrolls frá því sem aður var, miðað við sömu orkunotkun. Frá þvi að kevlar var sett á markaðinn hefur er>ginn hörgull verið á hugmyndum manna um hvernig nota megi þetta gerviefni á sem hagkvæm- astan og frumlegastan hátt. Hugmyndin um ,,himnakrókinn“ svokallaða hefur verið mikið til umræðu meðal geimvísinda- manna síðan hún fyrst fæddist. í hugmyndinni [elst að gervitungl verði staðsett yfir föstum punkti a Jörðinni og tengist hann henni með streng. Annar strengur jafnþungur þeim sem tengdur væri milli Jarðarinnar og gervitunglsins yrði að dingla út í himingeiminn til að mynda jafnvægisþyngd. Strengurinn sem til gervitunglsins lægi væri síðan n°taður fyrir lyftur er gengju upp og niður, að og frá gervitunglinu og jafnvel áfram eftir strengnum sern myndaði jafnvægisþyngdina, ef menn °skuðu, en þaðan mætti siðan senda hvað sem Vasri áfram út í geiminn. Snjöll og einföld hug- rr>ynd fyrir geimferðir framtíðarinnar. Eitt smá- atriði, eða svo, í þessari annars snjöllu hugmynd er hó enn óleyst til þess að hægt sé að framkvæma atta. Strengurinn sem kæmi til með að tengja §ervihnöttinn og jörðina, þyrfti að vera 36.000 m. langur, en fram til þessa hefur ekkert það efni verið fundið upp, sem er það sterkt, að strengurinn Sæti borið uppi eigin þyngd sína þvílíka vegalengd. að efni sem næst því kemst að ná þessum styrkleika, og er til sölu á almennum markaði, er eylar, og þessvegna er það í dag undirstaðan fyrir h'lurn útreikningum hjá vísindamönnum á u8myndinni um ,,himnakrókinn“. (Hvað var það n.u aftur sem Jules Verne var að segja á seinni hluta Slðustu aldar?). (Mynd 4). Ein af þeim hugmyndum sem tekin hefur verið til alvarlegrar ígrundunar, er að kom risaraf- magnshverflum fyrir í Floridasundinu, sem væru njörvaðir niður undir yfirborði sjávar með legu- færum úr kevlar. Á þessum slóðum er mjög jafn og sterkur straumur árið um kring þar sem Golf- straumurinn úr Karíbahafinu og Mexikoflóanum spýtist inn á Atlantshafið og norður með austurströnd Bandarikjanna. Sjá menn fyrir að með þessu móti megi sennilega fá rafmagn á sam- keppnisfæru verði. Hugmynd þessi er að vísu ekki ný af nálinni, en eftir að kevlar kom fram á sjón- arsviðið hefur hún verið endurlífguð og fengið byr undir báða vængi og er þetta efni eitt talið koma til greina í legufærin, þar sem það hvorki ryðgar né fær á sig hnokkabrögð og eins og áður sagði er það 5 sinnum léttara og jafnsterkt og stálvír af sama gildleika. Ef tekst að framleiða jafn sterka kápu eða slitflöt utan um kevlar og vírar hafa gagnvart núningi við ferhleður, togvírarúllur o.s.frv., er ekki ólíklegt að stálvírum verði að mestu rutt úr vegi í fiskveiðum. B.H. ÆGIR — 477

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.