Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1981, Blaðsíða 23

Ægir - 01.09.1981, Blaðsíða 23
stærðfræðiformúlur, sem endurspegluðu sam- engi allra þeirra þátta, sem sameiginlega valda því vernig veðráttan er og hvernig hún breytist. Þá yrði hugsanlega mögulegt að spá einhverju um veðráttuna fram í tímann og gera viðunandi grein yrir hvaða áhrif ýmsar athafnir mannanna gætu aft á veðráttuna. Við verðum að geta varað rrtannkynið við í tæka tíð og þannig a.m.k. gert til- raim til að afstýra háskalegri spillingu á þeim 1 sskilyrðum sem veðráttan býr okkur. Koltvíildið er bar einna efst á athugunarskrá. Einhver kynni að hugsa sem svo að það mætti teljast happ fyrir °kkur íslendinga að koltvíildi ykist og árangurinn yrði hlýnun á jörðinni um 1—2 stig. En þá er að muna eftir samhengi hlutanna og sjá einnig fyrir Ser búferlaflutninga allra íslendinga, sem nú búa v'ð sjávarströnd, upp á heiðar og fjöll. Ég gat þess áður, að við eigum hér á landi ritað- ar heimildir um veður, sem fyllilega standast samjöfnuð við heimildir granna okkar í Evrópu fyrir daga beinna veðurathugana með tækjum, og veðurathuganir okkar með tækjum ná einnig langt aftUr í tímann. Það er verulegur fengur í því að e'ga athuganir í Stykkishólmi allt aftur til ársins 1845 og frá Teigarhorni við Berufjörð og Grímsey frá 1874. Það mætti vafalaust fá fram ýmsa athyglisverða drætti úr veðurfarssögunni með ná- hvæmri könnun á veðurskýrslum þessara staða. horvaldur Thoroddsen hafði það í hjáverkum í 30 ar að kanna gamlar veðurathuganir. Á árunum 968—1969 greip ég í að skoða hitamælingar í ^iykkishólmi í því skyni að kanna hitabreytingar bar frá upphafi mælinga. Ég skoðaði hverja árstíð fyrir sig og í ljós kom að mjög ákveðin skil verða í Vetrarhitanum veturinn 1920—1921. Meðalhiti Vetra á öllu tímabilinu var - 1.2 stig, en eftir 1920 v°ru vetur til jafnaðar heilu stigi hlýrri en heildar- ^ðaltalið. Hitasveiflur eru mun meiri að vetri til enu á öðrum árstíðum. Þannig var meðalhiti kald- asta vetrar -9.9 stig en hins hlýjasta 2.7 stig. Munur- >nn er 12 Vi stig. Kaldast var veturinn 1880—1881, en hlýjast 1963—1964. Hér er veturinn talinn frá ðesember til mars í samræmi við gamla hefð. Surnarið er talið vera mánuðina júní til september °8 bá er hitasveiflan minnst. Hlýjast var sumarið 1^39 rneð rétt 11 stig en kaldast var 6.6 stig Sumarið 1882. Hér er munurinn aðeins 4'/2 stig. bótt þáttaskilin í vetrarhitanum séu skörpust Veturinn 1920—1921 eru þau ekki einu markverðu nttaskilin. Þannig voru fyrstu árin sem athuguð 3. mynd. Snjór er snar þáttur í veðurfari íslands. voru fremur hlý, en allir köldustu veturnir voru á tímabilinu 1853—1892 að undanskyldum vetrun- um 1907 og 1918 og síðan má segja að tímabil hlýju vetranna, sem hófst 1921, hafi endað 1966. Veðurstofan á geysimikið safn veðurathugana. Fljótlega eftir að Danir komu á fót veðurstofu hjá sér tóku þeir að skipuleggja veðurathuganir á ís- landi og í öðrum hjálendum sínum eins og Færeyj- ar, ísland og Grænland kallast í dönskum veður- skýrslum frá þessum tímum (og raunar bætist við St. Croux í Vestur-Indíum meðan danska nýlendu- veldið náði svo langt). Allar íslenskar veðurathug- anir voru því sendar tii Kaupmannahafnar fram til 1920. En það varð ekkert handritastríð um þessi dýrmætu handrit. Danska veðurstofan gaf þeirri íslensku öll íslensk skjöl úr skjalasafni sínu árið 1953, eftirtölulaust. Þegar íslenska veðurstofan var stofnuð 1920 tók hún við því hlutverki að sjá um veðurathuganir á landinu og vinna úr þeim veðurfarsskýrslur eftir því sem tími veðurfræðinga og aðstoðarmanna þeirra leyfði. En framvegis þurfum við eins og veðurfræðing- ar á öðrum veðurstofum að gera miklu betur. Við þurfum að leggja fram okkar skerf til þess að auka þekkinguna á breytileika veðráttunnar. Slík þekk- ing kemur að gagni, þó að við vitum ekki hvað langt hún hrekkur til sem efniviður í spá um veður- far framtíðarinnar. ÆGIR —487
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.