Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1981, Page 33

Ægir - 01.09.1981, Page 33
Nl di bað oft verða raunin, að þeir hinir sömu náðu Urn leið aðstöðu til þess að kaupa lifrina óbrædda UPP úr skipunum og hirtu síðan ágóðann af ysissölunni. Kaupmönnum hefur oft verið legið á a*si fyrir þetta og hefur þvi verið haldið fram, að ýs'sbræðslurnar hafi verið tæki þeirra til þess að ná s 'ipunum í eigin hendur.20 Hvað vestfirzkum aupmönnum viðkemur, á þessi skoðun full- komf eins ega rétt á sér. Hins vegar er það alls ekki rétt, og stundum hefur verið gert, að bera kureyrarkaupmönnum sömu sögu, a.m.k. ekki lvað viðkemur því timabili, sem hér er um fjallað. annleikurinn er nefnilega sá, að á Akureyri komst ,ssi siður ekki á, fyrr en komið var fram um 'ðustu aldamót. Allt frá því að kaupmennirnir á kureyri reistu Bræðsluhúsin á Torfunesi árið 66 og fram til aldamóta, hélzt sá siður á kureyri, að kaupmenn tóku lifrina til bræðslu af sjornönnum, en greiddu þeim síðan, oftast í reikn- lng í verzluninni, eftir því sem lýsisverð var á Verjum tíma. Raunar má segja, að þeir hafi brætt 1 rina og selt lýsið í umboðssölu. Ekki má skilja Petta svo, að Akureyrarkaupmenn hafi verið °tinu betri en aðrir kaupmenn á íslandi. Síður en s^°> það sem vafalaust hefur skipt mestu máli var, a Gránufélagið rak á sama tíma lifrarbræðslur, ^ði á Oddeyri og Siglufirði, og skapaði það eðli- e8a vissa samkeppni og um leið aðhald. Ég hefi þess getið, að kaupmenn muni ætíð, eftir að ræðsluhúsin tóku til starfa, hafa sagt lýsisverð Un lægra en það í raun og veru var. Ég tel það þó mJög vafasamt, að slíkar fullyrðingar fái staðizt. ^e>gamesta ástæðan fyrir því, að lýsisverðið féll Stöðugt á þessum árum hefur tvímælalaust verið SU’ þegar hér var komið sögu, var steinolían að J"yöja sér til rúms og þar eð steinolían var mun lentugra ljósmeti en lýsið, ódýrari og þrifalegri, þá er Það raunar ofur eðlilegt, að lýsisverðið félli eftir .Vl sem framboð á steinolíu á heimsmarkaðnum J°kst. Með þetta í huga ætti það einnig að vera augljóst, að ekki kom lengur til greina annað en *, tærasta og bezta lýsi, sem völ var á. Þetta s ýfir þá fullyrðingu, að kaupmennirnir hafi bætt a ra hag er þeir reistu Bræðsluhúsin, og að vissu JPjtrki má segja, að þeir hafi með þessu haldið 1 lnu í hákarlaútvegi Eyfirðinga um alllangt skeið, enda er hætt við því, að hákarlalýsi, brætt á hlóð- Urn á sveitabæjunum út með Eyjafirði, hefði enn ,^rr orðið undir í samkeppninni við hið nýja raefni. Af þessu ætti það að vera ljóst, að það var Við lýsisbræðslu. Mennirnir eru með griðarstamp á milli sin. efnahagsþróunin úti í heimi ásamt með framförum mannkynsins, sem olli því, að markaður fyrir þessa helztu útflutningsvöru Eyfirðinga brast, en ekki eingöngu samansoðinn danskur skepnu- skapur. Þá hafa sumir, er um þessi efni hafa fjallað, haldið því fram, að kaupmenn hafi ieikið sér að því að láta útvegsmennina safna skuldum, sem þeir síðan hefðu ekkert í að láta nema skipin. Vafalítið hefir það borið við á þessum tímum, ekki síður en nú, að einstaka menn sykkju svo djúpt í skuldafenin, að gera yrði stóreignir þeirra upptækar, en vafasamt er að halda slíku fram sem veigamikilli skýringu á því, hve mjög dró af há- karlaútveginum, er kom fram á síðustu áratugi 19. aldar. Veigamesta skýringin hefur þegar verið nefnd, en næsta tel ég þá staðreynd, að er hér var komið sögu, fór allur útgerðarkostnaður síhækk- andi. Var þetta eðlilega því harðara sem hákalaútvegurinn var hættur að standa undir sér ÆGIR —497

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.