Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1981, Page 31

Ægir - 01.09.1981, Page 31
^törf ,,Hins eyfirzka ábyrgðarfélags“ °8 bróun útgerðarinnar fram til 1867. Þarinig var Hinu eyfirzka ábyrgðarfélagi komið a fót árið 1868. Það hafði haft erfiðar fæðingar- nðlr> sem höfðu tekið hvorki meira né minna en J°rtán ár, ef miðað er við þann tíma, er liðinn var ra því, að hugmyndinni að stofnun þess var fyrst ■^ egið fram á prenti. Skyldi maður ætla að slíkur elagsskapur væri sæmilega þroskaður, þá loksins ann komst á laggirnar. Raunar bar heldur ekki á ° ru- Starfsemi félagsins einkenndist allt frá ynjun af frábæru athafnafjöri. Áður en hægt er j* skýra frá framkvæmdum, verður þó að lita á Pann grunn, sem þær hvíla á, — sjálf félagslögin. Lög hins eyfirzka ábyrgðarfélags voru birt í 0rðanfara 15. apríl 1869, eða þegar félagið var 0rðið um það bil ársgamalt. Ekki er auðvelt að j=eta sér þess til, hvað valdið hefur þessum drætti á 'rtingu laganna, enda skiptir það minnstu, en Vera má, að það hafi valdið mestu, að menn bjugg- Ust alltaf við inngöngu Siglfirðinga í félagið og hafi elagsstjórnin því ekki viljað birta lögin, fyrr en Peir væm komnir inn. Einnig má vera, að menn afi viljað hafa vaðið fyrir neðan sig, ef reynsla >ns fyrsta starfsárs hefði knúið til breytinga. Lögin eru í alls 26 greinum, og eru þau um margt róðleg. Einna mesta athygli vekur, að Eyfirðing- ar fóru ekki að fordæmi ísfirðinga og Norðmanna 1 bví efni að láta menn greiða mishá iðgjöld, eftir því 1 hvaða flokk skip var metið. Þeir höfðu ið- Sjaldið alltaf jafnhátt, eða 4'/2% af virðingar- Verði skips, alveg sama í hvaða flokki það lenti. Llins vegar ábyrgðist félagið misjafnlega mikinn uta skipanna, eftir því í hvaða flokk þau fóru e a 3/4 af virðingarverði skips í 1. flokki, 5/8 í ‘ ^°kki og /2 skips í 3. flokki. Ekki er fullkom- ega ljóst hvað valdið hefur því, að þessi regla var Valin í stað hinnar, sem fordæmi var fyrir hér á andi. Geta má sér þess til, að þetta hafi verið onsk regla og þá frá Steincke runnin. Hitt er svo a tUr á móti ljóst, að þessi regla hefur átt að stuðla a aukinni hirðusemi, og betri meðferð skipanna, v> að vissulega hlaut það að vera hagur útgerðar- ^nnnanna sjálfra að fá skip sin metin í l.flokk, og Ái víst nema menn hafi skilið þetta enn betur egar þessari aðferð var beitt. Auk ábyrgðar- Sjaldsins áttu menn svo að greiða 2!/2°7o af virð- ’ngarverði skipanna, sem þeir fengu tryggð, um leið og þeir sóttu um inngöngu í félagið. Skyldi þetta fé mynda sjóð félagsins. í framhaldi af þessu segir svo, að vilji félagsmaður auka það fé, er hann eigi í tryggingu, þá skuli hann um leið gjalda 2/i% af þeim viðauka með sama hætti. I 9. grein félagslaganna segir, að á aðalfundi skuli kjósa þrjá virðingarmenn, 2 skipstjóra og 1 skipasmið. í 10. grein segir, að stjórn félagsins skuli greiða úr sjóði kostnað við hina árlegu virð- ingu skipanna, en annað ekki. Þá segir í 12. grein, að skipaeigendur, skipstjórar og hásetar skuli rita nöfn sín undir þær greinar sjómannalaga félagsins, er þá snerti. Sjómannalög þessi hef ég hvergi fundið, en að öllum líkindum hafa þetta verið skráningarreglur, sem koma áttu í veg fyrir að menn hlypust úr skiprúmi, þegar þeim sýndist, eins og dæmi höfðu verið til. Einnig mun út- gerðarmönnum hafa verið gert að skyldu að segja til um, hve lengi skipum yrði haldið úti ár hvert. í sömu grein segir einnig, að skipstjóri skuli skyldur að halda dagbók svo og að jafnan skuli vera einn maður á hverju skipi, er kunni hið nauð- synlegasta í skipstjórnarfræðum. Þá er það skýrt tekið fram í lögunum, að ábyrgð á skipunum gildi aðeins frá 14. april til 14. september. Ef skipi er haldið úti utan þess tíma skal ábyrgðargjaldið hækka um 1 Vi%. Þá er og tekið fram, að ef menn hyggist halda skipi sínu úti til annars en veiða, þá skuli sérstök samþykkt félagsins koma til, til þess að ábyrgðin gildi. Ekki er á neinn hátt hægt að ræða eða rita um há- karlaútveg við Eyjafjörð fyrsta áratuginn eftir stofnun Ábyrgðarfélagsins án þess að rekja um leið sögu félagsins, því að i raun og veru er hún þróunarsaga útvegsins allt þetta tímabil. Mörg atriði útveginum viðkomandi eru þó ekki nátengd sögu félagsins. Þvi hef ég valið þann kostinn að reyna fyrst að rita í stuttu máli yfirlit yfir gang út- gerðarinnar á þessu tímabili, en skýra frá helztu framkvæmdum Ábyrgðarfélagsins sér í lagi. Það er hálfgerð sorgarsaga, að þegar Ábyrgðar- félagið, þetta óskabarn eyfirzkra hákarlaútgerðar- manna, loks komst á fót, var blómaskeiði þessa út- gerðarmáta raunverulega að ljúka. Þess var getið hér að framan, að fréttirnar um lýsisbræðsluna á Torfunesi og jaktina hans Johnsens kaupmanns á Akureyri hafi getað gefið vísbendingu um það, að hverju stefndi. Raunar var það svo, að þegar út- vegsbændurnir við Eyjafjörð stofnuðu Ábyrgðar- ÆGIR — 495

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.