Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1981, Side 14

Ægir - 01.09.1981, Side 14
Guðni Þorsteinsson: Af tilraunum til að draga úr smárækjuveiði Ymsar tilraunir hafa verið gerðar til að losna við smárækju úr afla án þess að missa verulegt magn af stórri og nýtanlegri rækju. Er þar fyrst að telja stærri möskva í poka og nota menn yfirleitt riðil sem er nokkru stærri en lágmarksmöskvastærðin. Ekki verður þó komið í veg fyrir smárækjuveiði með þessu móti. Er þá stundum gripið til þess ráðs að binda fyrir einhvers staðar uppi í belg, þar sem riðill er oftast nokkru stærri. Þessi lausn málsins er þó heldur vafasöm, því að veiðarfærinu er gjörbreytt til hins verra með einu handtaki auk þess sem mikið af stórri rækju fer út úr trollinu. Þessi aðferð er þess vegna því aðeins árangursrík að mjög mikið sé fyrir af rækju. Um skeið voru vonir bundnar við það, að flokkunarvélar um borð í bátunum gætu leyst þennan vanda, en dómur reynslunnar sýndi, að smárækjan fór að miklu leyti dauð í sjóinn aftur og var notkun þessara véla því bönnuð. Þriðja leiðin til að losna við smárækjuna er að auka slakann í hliðarbyrðunum. Fjallað verður um þá aðferð í þessari grein. Tilhögun tilraunanna. Fyrst skal tekið fram, að fyrstu tilraunirnar hér- lendis með slaka í hliðarbyrðunum voru gerðar á rs. Dröfn í ísafjarðardjúpi í mars 1980. Skýrt var frá niðurstöðum í 6. tbl. Sjávarfrétta það ár og verða þær ekki endurteknar hér. Um haustið voru tilraunirnar endurteknar að mestu í óbreyttu formi og er þar átt við, að einkum voru athuguð áhrif 20% slaka í hliðarnetinu. í mars sl. var svo athugað, hver áhrif 10°7o slaki hefði og verður hér einkum reynt að koma þeim niðurstöðum á fram- færi. Áður en vikið verður að niðurstöðum verður að lýsa stuttlega þeim breytingum á veiðarfærinu, sem um er að ræða. Á 1. mynd er sýnd teikning at rækjutrolli (öðru hliðarbyrðinu sleppt). Til- raunirnar hafa hingað til beinst að einu tilteknu netstykki (reyndar einu á hvorri hlið), sem sýnt er með breiðari línum á teikningunni. Þegar notaður er 10% slaki í þetta netstykki er það 10% lengra en sýnt er á teikningunni og samsvarandi fyrir 20% slaka. í stað slakans hefur líka verið reynt að nota 50 mm riðil án slaka. Til þess að afla upplýsinga um það, hve mikil og hve stór rækja sleppur út um hliðarbyrðið, voru notaðar 3 eða 4 litlar, fínriðnar netskjóður utan á byrðið. Með einfaldri margföldun má svo reikna út það hlutfall aflans, sem sleppur út. Með því að mæla stærð rækjunnar, bæði þeirrar sem sleppur (fæst í skjóðurnar) og veiðist, fást upplýsingar um það hversu mikið sleppur af hverjum lengdar- flokki. Niðurstöður. í tilraununum með 20% slakann kom í ljós, að nokkurt magn af nýtanlegri rækju slapp út um hliðarbyrðin og sömuleiðis i gegnum 50 mm riðil án slaka. Því má skjóta hér inn, að nokkuð hefur verið á reiki hvaða stærð af rækju er nýtanleg og hver ekki. Lengi vel var miðað við rækju með 17 mm skjaldarlengd, e.t.v. sumpart vegna þess, að friðun á smærri rækju væri mjög heppileg fyrir stofnstærðina. Hins vegar eru engin vandkvæði á því að vinna rækju niður í 15 mm skjaldarlengd- Það er því hagkvæmt, að sleppa sem mestu at rækju undir 15 mm skjaldarlengd en sem minnstu af stærri rækju. Reynslan hefur þó sýnt, að ávallt sleppur talsvert af stórri rækju, ef sleppa á smá- rækjunni með stærri möskvum. Og þá er víst ekkert að vanbúnaði að skýra frá 478 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.