Ægir - 01.01.1982, Page 23
skoðun þessa verði gerð í samráði við sjóslysa-
ne^nck siómannasamtökin, L.Í.Ú. og Slysavarna-
^élag íslands.
5- Að strax verði gerð ný og fullkomin kvikmynd
nm gúmmibjörgunarbáta og notkun þeirra. í þá
vikmynd kæmu hin nýju sjósetningartæki sem
undið eru upp af Sigmund Jóhannssyni.
ú. Að brýnt verð fyrir skipstjórnarmönnum að
, °ma með skipshafnir sínar á þá staði sem gúmmí-
jörgunarbátar eru skoðaðir og kynna þeim þar
únað þeirra og mikilvægi. Að lokinni skoðun
lverju sinni skal skoðunarmaður fylgjast með frá-
§angi bátanna um borð í skipunum.
■ Að beint verði til stjórnvalda að rýra ekki lög-
gæslu í sjávarplássum eins og nú er gert, seinnipart
nætur.
Greinargerð með 7. lið
I Vestmannaeyjum og sennilega víðar á landinu,
hefur það oft komið fyrir að lögregluþjónar hafa
újargað mönnum, sem fallið hafa í höfnina. Einn-
'g hafa þeir kallað út áhafnir þegar landfestar á
skipum þeirra hafa verið að gefa sig í vondum
veðrum, eða einhverju öðru hefur verið ábótavant
um borð. Nú er aðeins einn lögregluþjónn á vakt
úá kl. 0500 til 0900 og verður hann að vera á lög-
reglustöðinni og því engar eftirlitsferðir farnar
með höfninni á þessum tíma. Svipað ástand mun
vera í fleiri sjávarplássum.
Að felld verði niður öll gjöld og tollar af tækj-
Urn og öðrum búnaði sem björgunar- og hjálpar-
sveitir nota við björgunarstörf sín.
9- Að strax verði fært inn á sjókort grynningar og
^er> sem eru við Maríuhlið, ca. 10 sml. vestan við
yrhólaey og m/b Sigurbára VE strandaði á s.l.
vetur.“
Eins og þið heyrið af lestri þessara ályktana um
úryggismál er margt og þarft á drepið, sem full
Pörf er að ræða hér og fylgja síðan eftir svo málin
Ua' fram að ganga. Ég mun ekki hér fara ofan í
P®r ályktanir sem borist hafa, nema þær sem eru
ra Eiskideildinni i Vestmannaeyjum. Þær mun ég
reyna að skýra lítillega, en ég veit að hinir fylgja
s>num tillögum úr hlaði og auðvelda með því vinnu
eirrar nefndar sem tillögurnar lenda hjá.
Tillögur frá Fiskideild Vestmannaeyja um
0ryggismál eru í 9. liðum og skal ég reyna að fara
fljótt yfir sögu og ætla að enda á þeirri tillögu, sem
merkt er nr. 1. Ég byrja þá á 2. tillögu, sem er til-
laga um yfirbyggða björgunarbáta. Við komum
fram með þessa tillögu hér eftir að hafa verið vakt-
ir af mynd sem sýnd var í fréttatíma sjónvarpsins
af heimsókn manna frá Sjóslysanefnd, Farmanna-
og fiskimannasambandi íslands og Slysavarnafé-
laginu, um borð í norskt flutningaskip til að kynna
sér þessa báta þar. Ingólfur Stefánsson var með í
þessum hópi að mig minnir, og ég veit að hann seg-
ir okkur hér á eftir frá þessum búnaði, en ég þori
að fullyrða að þarna erum við orðnir langt á eftir
hvað öryggisbúnað snertir. Við gætum hugleitt
með okkur ef þessi búnaður hefði verið um borð í
Tungufossi, þegar hann fórst á Ermarsundi, hvað
miklum áhyggjum hefði verið létt af skipshöfn-
inni, hefðu þessi öruggu tæki verið þar til. Það
birtist í News Week í ágúst 1981 grein um tilraunir
með slíka báta og ætla ég að leyfa mér að lesa hana
hérna i lauslegri þýðingu.
,,Það er engin tilviljun að nýjar tegundir af
björgunarbátum eru sífellt að líta dagsins ljós í
Noregi. Árlega ferst þar fjöldi manna i sjóslys-
um vegna þess að ekki er um annan björgunar-
búnað að ræða en hina hefðbundnu björgunar-
báta. Árið 1978 ákvað norska Siglingamála-
stofnunin að reyna að draga úr þessari tegund
slysa með því að láta hanna nýja tegund björg-
unarbáta, sem væru nægjanlega litlir og með-
færilegir til að þeir kæmust fyrir jafnvel á
minnstu fiskiskipum. Nokkrir af þessum til-
raunabátum hafa þegar verið byggðir. Ein gerð-
in er hönnuð af Jörgensen og Vick A/S, Grim-
stad og er algjörlega lokuð gerð, svokallað lok-
að björgunarhylki. Þessi björgunarbátur hefur
rými fyrir allt að 10 menn og hann réttir sig
sjálfur þegar hann kemur i sjóinn, jafnvel þó að
niðurgöngulúgan sé opin og báturinn hálffyllist
af sjó. Þessi björgunarbátur er 15,5 fet á lengd
og 6,5 fet á breidd og mælist 53A fet frá kili og
upp í lúgu, er búinn 7 hestafla mótor og skrúfu,
sem varin er stálgrind. Báturinn er hannaður
þannig að hann liggur djúpt í sjó og er því á
honum miklu minna rek. Allt ytra byrði bátsins
er tvöfalt og einangrað með frauðpasti til þess
að auka flot bátsins og einangrun.“
4. tillaga um skyndiskoðun á öryggisbúnaði
skipa er oft búin að sanna að hún er nauðsynleg.
ÆGIR — 11