Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1982, Síða 24

Ægir - 01.01.1982, Síða 24
Ég get tekið eitt smádæmi af mörgum. Á Hilmi SU, sem er nýtt og fullkomið skip, kom eitthvað fyrir gúmmíbjörgunarbátana, þeir losnuðu, eða eitthvað annað kom fyrir, ég veit ekki hvað það var, en það þurfti að skoða þá. Þegar þeir voru skoðaðir kom í ljós að það vantaði varmapokana i bátana. Varmapokarnir eru eitt af allra nauðsyn- legustu tækjum um borð í björgunarbátum til að menn geti haldið á sér hita. Þrýstiflöskur, sem eiga að blása út gúmmíbjörgunarbátana eiga það til að bregðast, eins og við vitum margir. Hér á landi koma þær beint úr fyllingu í bátana, en hjá Víking, sem framleiðir stóran hluta þeirra gúmmíbjörgun- arbáta sem eru um borð í íslenskum skipum verða þær að standa í 90 daga áður en þær fara um borð í bátana. Hjá Dunlop verksmiðjunum standa þær í 20—23 daga. Þessi tillaga um skyndiskoðun á öryggisbúnaði skipa er hvergi nærri tæmandi, en við vildum með henni vekja umræðu um þessi mál. í enda greinargerðarinnar er tekið fram hverjir ættu að okkar mati að taka þátt í að móta reglu- gerð um þetta mál. Ykkur finnst kannske vanta þar á, en við mundum í svipinn ekki eftir fleirum, sem leggja myndu þessu máli lið svo að vel gengi. Ég veit ekki hvort að verið er að vinna að þeirri kvikmynd, sem rætt er um i tillögu 5, en geri mér fulla grein fyrir nauðsyn hennar og tel að gerð hennar verði að hraða svo sem kostur er á og finnst rétt að við ýtum vel á eftir því máli. Fyrri hlutinn af 6. tillögunni er að vísu gamall siður, í það minnsta í Vestmannaeyjum, en þvi miður að mestu niðurlagður nú. Um að skoðunar- maður fylgi gúmmíbjörgunarbátunum um borð og fylgist með frágangi þeirra þar, ber að leggja á sér- staka áherslu nú, ef svo fer fram sem flestir vona að hinn nýi og fullkomni sjósetningarbúnaður uppfundinn af Sigmund Jóhannssyni verði lög- skipaður og komi um borð i öll íslensk skip. Það hefur komið fyrir að ranglega hefur verið gengið frá bát á þann hátt að búnaðurinn virkaði ekki. Þetta kom fyrir um borð i aflaskipinu Þórunni Sveinsdóttur en sem betur fer tóku menn eftir þessu strax. En slikt ber vissulega að fyrirbyggja að geti komið fyrir. 7. tillagan skýrir sig að öllu leyti sjálf. Fiskimálastjóri sagði í upphafsorðum sínum á þessu þingi í gær, að Slysavarnafélag íslands hefði bjargað 37 mönnum það sem af væri liðið þessu ári. í þeim hópi eiga Vestmannaeyjar tvær skips- hafnir. 8. tillagan frá Fiskideild Vestmannaeyja er kannske hvortveggja í senn þörf ábending um þá sjálfsögðu skyldu að ríkisvaldið felli niður öll gjöld og tolla af þeim tækjum og búnaði sem þessar sveitir þurfa að nota, ekki bara af sumum þeirra. Og svo gæti hún líka verið lítill þakklætisvottur fyrir það ómetanlega starf sem björgunar- og hjálparsveitir hafa unnið i gengnum árin á þessu landi, sjómönnum og öðrum landsmönnum til handa. 9. tillagan þarf ekki skýringar við, svo sjálfsögð er hún, en þarf að komast á framfæri samt. Góðir Fiskiþingsfulltrúar, það segir einhvers- staðar að í upphafi skuli endirinn skoða, en það má segja að ég hafi hér snúið þvi dyggilega við, það sem ég ætla nú í lokin á þessu spjalli mínu að ræða um þá tillögu sem hjá félögum Fiskideildar Vestmannaeyja og öllum Vestmannaeyingum er í dag efst á baugi og brennur þeim heitast á vörum, en það er að sjósetningarbúnaður sá fyrir gúmmi- björgunarbáta, sem Sigmund Jóhannsson hefur fundið upp, komist sem fyrst um borð í öll íslensk skip. Tillaga okkar er að mestu samhljóða tillögu Austfirðinga, nema hún kveður kannske eilítið fastar á. Þið hafið nú fyrir framan ykkur bækling sem lýsir þessum búnaði betur en ég get gert með orðum. Við erum einnig svo heppnir að hérna hjá okkur er staddur Þórhallur Hálfdánarson, fram- kv.stj. Sjóslysanefndar með sýningartæki af þess- um búnaði og ætlar hann að sýna hann hér á eftir og skýra ykkur frá ágæti hans. Ég hef sagt það áður að Sigmund vakti sjómenn í Vestmannaeyjum og vonandi um allt land, af dvala um öryggismál sín á s.l. vetri þegar hann færði islensku sjómannastéttinni að gjöf þessa uppfinningu sína, og vil ég halda fram að loksins varð þetta dásamlega björgunartæki sem gúmmí- björgunarbáturinn er, að fljótvirku og öruggu björgunartæki. Búnaður þessi var sýndur i höfn- inni í Vestmannaeyjum á s.l. vori. Ingólfur Arnar- son ásamt fleirum sem hér eru inni, var þar við- staddur f.h. Fiskifélagsins og gaf stjórninni síðan skýrslu um það mál, eins og Már Elísson skýrði frá í gær og birtist hún í 10. tbl. Ægis 1981. Eins og segir í bæklingnum sem ég nefndi áðan, komu tveir fyrstu gúmmíbjörgunarbátarnir til Vestmannaeyja 1952. Annar sannaði fljótlega ágæti sitt er meiri hluti af áhöfn m/b Veigu bjarg- aðist á honum þegar hún fórst skammt fyrir sunn- an Eindrang. Sú björgun setti vissulega skrið á 12 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.