Ægir - 01.01.1982, Side 39
Fiskur sá sem var lagður niður eftir því sem
getur um í 1. flokki var daglega athugaður og
reyndist alltaf jafn fastur og óskemdur í 14 daga
eftir að hann var lagður niður og voru þá 7
tegundir soðnar og reyndust þær fullkomlega eins
°g nýveiddur fiskur.“ (Tilvitnun lýkur).
Hún skyldi þá ekki vera þarna aðferðin til að
auka gæði fisks um borð í a.m.k. togurunum
okkar. Það vefst sennilega ekki fyrir mönnum á
bessari tækniöld að hanna einfalda pökkunarvél,
sem smeygði þorskinum í einhverskonar loftheldan
smokk á leið hans eftir færibandinu fram í lestina.
•
Færeyski verksmiðjutogarinn ,,Giljanes“, (87 m
'angur og 1.594 brt), landaði í Grimsby í byrjun
október s.l. tæpum 700 tonnum af kolmunnaflök-
um og -marningi. Af þessum farmi voru 200 tonn
af kolmunnamarningi tekin til frekari vinnslu af
R°ss samsteypunni, en áður hafði marningurinn
verið unninn um borð í rúmlega 3 kg blokkir, 100
tonn af marningi var selt til Bandaríkjanna ásamt
10 tonnum af flökum, en eftirstöðvarnar af aflan-
um, sem var flök, var umskipað fyrir kaupendur í
Austur-Þýskalandi.
Aður hafði ,,Giljanes“ komið við í Færeyjum
°g landaði þar rúmlega 100 tonnum af kolmunna-
mjöli. Fullfermdur getur togarinn verið með 900
tonn af fullunnum kolmunna og 150 tonn af mjöli,
en hægt er að framleiða 5 tonn af mjöli á sólar-
Ffing um borð. Auk þess sem að framan er talið í
bessum túr, var allverulegt magn af heilfrystum
kolmunna í farminum sem ætlað var til rannsókna
°g markaðstilrauna. Túrinn tók 7 vikur.
Um borð í ,,Giljanes“ er hægt að framleiða allt
a^ bvi hvað sem er úr kolmunna til manneldis,
tmdir þeirra eigin vörumerki, samkvæmt því sem
talið er að eigi best við á hverjum markaði fyrir
sig.
..Giljanes“ er einvörðungu gert út til kolmunna-
veiða og er þetta fyrsta alvarlega tilraunin sem gerð
hefur verið til að veiða kolmunna árið um kring.
Ffam til þessa hefur það tekist framar vonum og er
útkoman á útgerðinni hagstæð.
Um borð í togaranum er 60 manna áhöfn, en
skipstjórinn, Sigurd Simonsen, er talinn einhver sá
snjallasti og reyndasti á þessu sviði á Norður-
Atlantshafinu. ,,Giljanes“ hefur hingað til verið að
aiestu að veiðum innan færeyskrar landhelgi, en
eitar jafnframt fanga víðsvegar um Norður-
Atlantshafið, s.s. við Jan Mayen og í íshafinu.
Trollið sem þeir nota er sett upp í Færeyjum. Er
það 250 m langt með 4.000 m2 opnun og 16 m
möskvastærð í kjaftinum. Toghraðinn hjá þeim er
að öllu jöfnu um 5 sjómílur.
í endaðan október kom svo franski verksmiðju-
togarinn „Captaine Pleven 11“ til Hull og landaði
þar 350 tonnum af flökum, en það var helmingur-
inn af afla hans, hinn helmingurinn fór á franska
markaðinn. Er þetta stærsti togari sem lagst hefur
að bryggju í Hull fyrr og síðar, en hann er 3 m
lengri en ,,Giljanes“.
Likt og um borð í ,,Giljanes“ voru kolmunna-
flökin unnin í blokk, en Bretar endurvinna flökin
og gera úr þeim gæðavöru, enda er hráefnið tal-
ið frábært og flökin með fallega hvítum lit.
Samkvæmt upplýsingum frá skipverjum á
,,Captaine Pleven 11“, er daglegur útgerðarkostn-
aður togarans um 7.000£ (135.000 ísl.kr.), og er hann
rekinn með verulegum ágóða meðan á þessum veiði-
skap stendur. Þessi umræddi túr hjá Frökkunum
tók um 11 vikur og hófu þeir veiðarnar við Jan
Mayen, en þokuðust smám saman suður á bóginn
og var endað úti af Færeyjum. Afli í hali var þetta á
bilinu 40 til 60 tonn að jafnaði, en aðeins er hægt
að vera að á daginn, þar sem kolmunninn dreifir
sér á nóttunni. Frakkarnir gerðu ráð fyrir að far-
inn yrði annar túr á árinu og hefur það m.a. vakið
vonir með Bretum um að stöðugt framboð komi til
með að verða á kolmunna allt árið, þannig að um
samfellda framleiðslu á kolmunnaafurðum verði
að ræða í fiskvinnslustöðvum þeirra.
Kolmunnaafurðir eru hægt og bítandi að hasla
sér völl á fiskmörkuðum. Þykir fiskurinn almennt
góður á bragðið, fáist menn til að reyna hann, þá
sé ekki að sökum að spyrja, menn biðja um hann
aftur. B.H.
Fœreyski verksmiðjutogarinn ,,Giljanes“
ÆGIR — 27