Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1983, Page 46

Ægir - 01.03.1983, Page 46
og aflabrögð Allur afli báta er miðaður við óslægðan fisk, að undanskildum einstökum tilfellum og er það þá sérstaklega tekið fram, en afli skuttogaranna er miðaður við slægðan fisk, eða aflann i því ástandi sem honum var landað. Þegar afli báta og skuttog- ara er lagður saman, samanber dálkinn þar sem aflinn í hverri verstöð er færður, er öllum afla breytt í óslægðan fisk. Reynt verður að hafa aflatölur hvers báts sem nákvæmastar, en það get- ur oft verið erfiðleikum háð, sérstaklega ef sami báturinn landar í fleiri en einni verstöð i mánuðin- um, sem ekki er óalgengt, einkum á Suðurnesjum yfir vertíðina. Afli aðkomubáta og skuttogara verður talinn með heildarafla þeirrar verstöðvar sem landað var í, og færist því afli báts, sem t.d. landar hluta afla sins í annarri verstöð en þar sem hann er talinn vera gerður út frá, ekki yfir og bætist því ekki við afla þann sem hann landaði í heimahöfn sinni, þar sem slíkt hefði það í för með sér að sami aflinn yrði tvítalinn i heildaraflanum. Allar tölur eru bráðabirgðatölur í þessu aflayfir- liti, nema endanlegar tölur s.l. árs. SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND í janúar 1983 Vegna ótíðar var sjósókn mjög erfið í mánuðin- um. 264 (222) bátar voru byrjaðir veiðar og fóru þeir 1817 (1039) sjóferðir. Heildarbotnfiskafli bát- anna var 8.475 (9.757) tonn. Veiðarfæraskipting þeirra var þannig: Lína 108 (93) bátar, sem fóru 792 (540) róðra og öfluðu 3.934 (2875) tonn. Net 106 (115) bátar, sem fóru 700 (465) róðra og öfluðu 4.014 (6.533) tonn. Botnvarpa 33 (14) bátar, sem fóru 76 (34) róðra og öfluðu 507 (349) tonn. Auk þess réru 17 (14) bátar með skelplóg og öfl' uðu þeir 1.373 (521) tonn af hörpuskel í 249 (102) sjóferðum. 32 (25) skuttogarar lönduðu 5.425 (3.072) tonn- um og er það miðað við ósl. fisk. Fjöldi landanna var 49 (25). Þeim, sem kynnu að vilja bera þetta saman vi það sem gerðist í janúar í fyrra, skal bent á að þa stóð verkfall á bátum og minni togurum til 20- janúar og hjá stóru togurunum til 1. febrúar. Aflinn í hverri verstöð miðað við ósl. fisk: 1983 1982 tonn tonn Vestmannaeyjar 1.801 2.202 Þorlákshöfn 1.709 1.934 Grindavík 1.884 2.580 Sandgerði 1.128 1.711 Keflavík 1.230 1.576 Vogar 0 35 Hafnarfjörður 383 403 Reykjavík 2.209 456 Akranes 1.447 829 Rif 664 460 Ólafsvík 866 785 Grundarfjörður 504 344 Stykkishólmur 74 102 Aflinn í janúar Vanreikn. í janúar 1982 ... 13.899 13.417 63 Aflinn frá áramótum 13.899 13.480 Aflinn í einstökum verstöðvum: Vestmannaeyjar: Suðurey Heimaey Valdimar Sveinsson Glófaxi Dala Rafn Ófeigur III Gjafar Árni í Görðum Sæbjörg Sighvatur Bjarnason Bergur Veiðarfæri Sjóf. net 14 net 13 net 15 net 12 net 15 net 14 net 5 net 11 net 3 net 3 net 1 Afl’: tonn 81.7 77.8 76.9 58.4 49.4 49.2 39.5 31.2 28.2 25,3 5,8 150 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.