Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1983, Page 18

Ægir - 01.04.1983, Page 18
Bolungavík um 1920. Á miðri myndinni má greina íshúsið við ána, en það var notað til beitugeymslu fram yfir 1940. umsamið verð, 275 krónur. Skal verkinu lokið fyrir næstu páska.“ í ágúst 1916 var Páll Guðmundsson ráðinn ís- hússtjóri næsta ár „fyrir 70 krónur á mánuðinn, þann tíma ársins, sem þörf er á að halda húsinu við.“ Gegndi hann starfinu næstu þrjú árin. Það er til marks um atvinnuástandið á þessum árum, að árið 1919 gáfu fjórir menn kost á að taka starfið að sér. Lægstu tilboðin voru frá Jóni Hálfdánssyni og Ásgeiri Guðbjartssyni, sem buðust til að taka starfið að sér fyrir 100 krónur um mánuðinn. Var Ásgeir ráðinn til starfans og gegndi hann starfinu í eitt ár. Næstu árin var Einar Guðfinnsson íshús- stjóri, en árið 1925 var Magnús Hálfdánsson ráð- inn, og gegndi hann starfinu meðan húsið var notað til beitugeymslu.24) Ný íshús á Vestfjörðum. Um svipað leyti og útvegsbændur í Hnífsdal bundust samtökum, til að koma sér upp íshuSI' stofnuðu Bolvíkingar hlutafélag í sama tilg311®1 Stóðu fyrir þeirri félagsstofnun Pétur Oddsso”' Jóhann Bjarnason, Kristján Halldórsson, J Jónsson frá Ljótunnarstöðum og Árni Gíslasom^ Félag þetta lét reisa íshús við Hólsá í Bolung3'^ og var ísinn til hússins tekinn af ánni. íshúsið sJa var einlyft með risi, en loft var í hálfu húsi11 Niðri voru 3 frystiklefar og ein ísgeymsla. Lell^_ þess var 10,4 metrar en breidd 8,7 metrar. N fram þrem hliðum þess voru svo skúrbygg111- (skv. brunabótamati dags. 24.11.16). f Fyrsta starfsárið tók húsið við 150 tunnun1 síld til frystingar, en gat aðeins selt 40 tunnur, h' var kastað. Þetta breyttist þó fljótt og var hus notað til beitugeymslu fram yfir 1940. ^ í riti sínu Gullkistunni segir Árni Gíslason þvi, að félagið hafi fengið 4.500 kr. að láni í Sp®, sjóði ísfirðinga til íshúsbyggingarinnar, og það verið greitt upp eftir fá ár.25) -r í skýrslu sinni um fiskirannsóknir 1901 s£r Bjarni Sæmundsson, að vegna þess, hve 1 .j.|U séu fá, geti þau hvergi nærri fullnægt hinni m1 beituþörf þilskipa og báta. Til þess að bæta þessu, telur hann nauðsynlegt að koma upp ^ húsum, sem séu eign útvegsbænda sjálfra, ^ bendir á, að koma þurfi upp íshúsum i þessum' . stöðvum: í Aðalvík, á Hesteyri eða í Grunnavi > , Sandeyri, í Ögurnesi eða Ögurvík, Lange>' , Álftafirði, í Bolungarvík (bændaeign), í Súgan , firði, í Önundarfirði, einhversstaðar utant' Arnarfirði og á Suðureyri i Tálknafirði.26) Næstu árin voru byggð íshús í nokkrum ^ verstöðva, sem hér eru nefndar. Hannes Sigu1^, son, formaður á Látrum, keypti einn fyrsta m° ^ bátinn til Aðalvikur árið 1906 og kom um s''"1 Pétur Oddsson. Sigurður Þorvarðarson. Friðrik Hjartar. Grímur Jónsson. 178 —ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.