Ægir - 01.04.1983, Blaðsíða 24
ir á ísafirði. Upphaflegt hlutafé félagsins var eitt
hundrað þúsund krónur og lagði Hálfdán fram
sextíu þúsund en hinir hluthafarnir sín tíu þúsund-
in hver. Á stofnfundinum voru samþykkt lög fé-
lagsins og þar var Hálfdán kosinn framkvæmda-
stjóri og stjórnarformaður, en aðrir í stjórn voru
þeir Guðbjartur Ásgeirsson og Aðalsteinn Pálsson
og til vara Guðmundur M. Jónsson. Hann er hinn
eini af stofnendum fyrirtækisins, sem enn á sæti í
stjórn þess.
Að Guðbjarti Ásgeirssyni undanskildum voru
stofnendurnir allir annaðhvort nánir ættingjar eða
venslamenn Hálfdánar. Hér var þó ekki á ferð
venjulegt fjölskyldufyrirtæki, stofnað til þess að
færa fjölskyldunni auð. Hugmyndin að baki stofn-
unar Norðurtangans var öðru fremur sú að tryggja
hluthöfunum fasta atvinnu og allt frá fyrstu tið
hefur það verið regla í Norðurtanganum, að fyrir
tækið væri að meirihluta í eigu manna, er ynnu Þar
fulla vinnu. Þetta kom skýrast i ljós þegar Hálfdan
í Búð lést árið 1949. Þá seldi ekkja hans öll hluia
bréf þeirra hjóna og voru kaupendurnir þrír me'11'
á ísafirði, þeir Eggert Halldórsson, Guðjón
Jónsson og Ingólfur Árnason. Guðjón kom l'11
við sögu fyrirtækisins, en þeir Eggert og Ingólfur’
sem báðir störfuðu lengi í Norðurtanganum, v°rU
nátengdir Hálfdáni og höfðu starfað með honu111
lengi. Um svipað leyti og Hálfdán féll frá ákváðu
þeir Aðalsteinn Pálsson og Steingrímur Árnaso11
að selja sína hluti í fyrirtækinu. Síðan hetur
Norðurtanginn verið að fullu í eigu manna bu
settra á ísafirði.
Þegar Hálfdán Hálfdánsson féll frá var Gu^
bjartur Ásgeirsson kjörinn stjórnarformaður
HRAÐFRYSTIHtíSID NORÐURTANGI H.F. - ÍSAFIRÐI
STOFNAÐ 11. DES. 1942
184 —ÆGIR