Ægir - 01.04.1983, Page 25
Hraðfrystihúsið
1943.
^ ^rðurtangans og átti hann sæti í stjórninni nær
^ ^^ðadags, 1973, lengst af sem for-
fv • Ur' ^e^ur enginn annar maður átt sæti í stjórn
fT^kisins jnfnlengi.
^ alfdán Hálfdánsson var framkvæmdastjóri
^ ruurtangans uns hann lést. Þá varð Ingólfur
u nason framkvæmdastjóri og gegndi því starfi
e-r l'',' nrsbyrjun 1961, er hann lét af störfum að
'n oslt- Þá var Baldur T. Jónsson ráðinn fram-
^r*mdastjón og stýrði hann fyrirtækinu til 1969,
f °n ^a^ Hnlldórsson tók við. Hefur hann verið
rnkvæmdastjóri síðan.
pSar framkvæmdir og rekstur.
sta ^rstu 14 árin sem Norðurtanginn starfaði var
'n8uSemÍ ^r'rtælcislns bundin við verkun og fryst-
a fiski, sem keyptur var af ýmsum skipum, en
e'nkurn af ísfirsku togurunum. Lengst af þess-
um tima var öll starfsemin í gamla hraðfrystihús-
inu, sem byggt var 1942—1943, en árið 1954 hófust
byggingarframkvæmdir sem síðan hafa staðið með
litlum hléum.
Árið 1954 var reist ísframleiðsluhús i Norður-
tanganum og sá ís sem þar var framleiddur seldur í
skip. ísframleiðsla Norðurtangans átti mikinn þátt
i því að togarar víðsvegar að af landinu lönduðu
afla sínum á ísafirði næstu árin og varð það m.a.
tii að auðvelda hráefnisöflun Norðurtangans um
skeið.
Á næstu árum fór starfsemi Norðurtangans
stöðugt vaxandi og brátt leið að því að hefjast yrði
handa um nýjar bvggingarframkvæmdir. Árið
1957 var byggt hús fyrir útgerð fyrirtækisins, sem
þá var nýlega hafin og 1961 var frystihúsið endur-
byggt og stækkað mikið. Það var síðan stækkað
aftur með viðbyggingu árið 1971, en 1965 var reist
fiskmóttökuhús, sem aftur var stækkað er byggðar
voru þrjár hæðir ofan á það árið 1975. Öll voru
þessi hús reist í Norðurtanganum, en nú hin síð-
ustu ár hefur fyrirtækið tekið þátt i byggingu
frystigeymslu og svonefnds Hafnarhúss við ísa-
fjarðarhöfn.
Eins og áður var getið liðu full fjórtán ár frá því
Norðurtanginn var stofnaður og þangað til fyrir-
tækið hóf eigin útgerð. Á þessum árum var hrað-
frystihúsið enn lítið, a.m.k. miðað við það sem síð-
ar varð, og það fékk nóg hráefni af ísfirsku togur-
unum, bátum og aðkomuskipum. Má þá einnig
minna á, að á þessum fjórtán árum höfðu margir
0,
VeSshúsið
vinstri og ísframleiðsluhúsið til hœgri.
ÆGIR — 185