Ægir - 01.04.1983, Page 36
keppnin fyrir vestan hörð. Sérstaklega áttu íslend-
ingar í höggi við Kanadamenn, sem héldu áfram
uppteknum hætti að vera með rúmlega 30% lægra
verð en íslenzka verðið var á helztu flakategund-
um. Þessi sölustefna Kanadamanna hefur haft til-
ætluð áhrif, sem m.a. má sjá í allverulega auknum
útflutningi frystra þorskflaka frá Kanada til
Bandaríkjanna árið 1982, á sama tíma, sem inn-
flutningurinn frá íslandi minnkar mikið.
Kanada — ísland.
Þegar þessi grein er skrifuð liggja fyrir tölur yfir
innflutning frystra sjávarafurða til Bandaríkjanna
fyrstu 11 mánuði ársins 1982, ásamt sambærileg-
um tölum fyrir sama tímabil 1981. Eftir helztu
löndum var innflutningur frystra þorskflaka sem
hér segir:
Breyting
1981 1982 1981/82
smál. smál. %
Kanada .................... 28.581 36.768 +28,6
ísland .................... 23.959 17.815 ^-25,6
Noregur..................... 1.941 2.327 + 19,9
Danmörk .................... 1.963 3.780 +92,5
Önnurlönd................... 2.813 3.986 +41,7
Samtals ................... 59.257 64.676 +9,1%
Framanskráðar tölur tala skýru máli. Á sama
tíma, sem heildar innflutningur Bandaríkjanna á
frystum þorskflökum eykst um 9,1% á ellefu
fyrstu mánuðum ársins 1982, minnkar innflutn-
ingurinn um 25,6% frá íslandi, en eykst hins vegar
um 28,6% frá Kanada. Umrætt timabil 1981 var
hlutdeild Kanada í þessum innflutningi 48,2% og
íslands 40,4%, en á sama tíma 1982, er hlutdeild
íslands komin niður í 27,5%, en Kanada hefur
hækkað upp í 56,8%.
Hér er um mjög alvarleg umskipti að ræða fyrir
íslenzkan hraðfrystiiðnað, sem hefur treyst á
bandariska markaðinn á liðnum áratugum. Vegna
styrkingar bandaríska dollarans á liðnu ári hafa ís-
lendingar ekki fundið eins mikið fyrir þessari þró-
un og ella, en allar breytingar á stöðu dollarans til
hins verra mun segja fljótt til sín.
íslenzku sölufyrirtækin í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir þessa neikvæðu þróun juku fyrirtæki
Íslendinga í Bandaríkjunum heildarsölu miðað við
verðmæti, en þær voru sem hér segir (1981 er tekið
með til samanburðar):
1981 1982
millj. millj.
Coldwater Seafood Corp: dollara dollara
(S.H.) Icelandic Seafood Corp. 195,6 197,5
(S.Í.S.) 90,9 101,0
Samtals 286,5 298,5
árfráár'1
í fí
1,0
11.1
Skýringarnar á þessari aukningu eru- m-a-
fólgnar í því, að bæði fyrirtækin juku sölur á svo-
nefndum verksmiðjuframleiddum vörum, sem
framleiddar eru í fiskiðnaðarverksmiðjum þeirra-
Sem fyrr starfrækja þau 3 verksmiðjur, Coldwater
er með tvær. Er önnur verksmiðjan í Cambridge’
Maryland og hin í Everett, Boston. Verksmiðja
Iceland Seafood er í Harrisburg.
Gagngerðar breytingar hafa átt sér stað á frýstl'
geymslu og fiskréttaverksmiðju Iceland Seafoo
Corp. á síðustu árum eða í stuttu máli sem her
segir:
1) í júlí 1980 var tekin í notkun ný frysti'
geymsla, um 4.100 ferm.
2) í nóvember 1980 var tekið i notkun nýtt húS'
næði fyrir rannsóknar- og þróunardeild, unl
500 ferm. að flatarmáli.
3) í lok síðasta ársfjórðungs 1981 var lokið síð'
asta áfanga byggingarframkvæmda er hófuSt
árið 1979, var það 5.100 ferm. stækkun fis^'
réttarverksmiðju.
í fyrri áramótagreinum hefur verið skýrt nokk'
uð frá fiskréttaverksmiðjum Coldwater, en hin
nýrri, sem er staðsett í Everett tók til starfa i rn3!
1978, en verksmiðjan í Cambridge hóf starfsem1
sína 1968. Báðar eru þessar verksmiðjur, sem
verksmiðja Icelandic Seafood, búnar hinum fu^'
komnustu vélum og tækjum. Eru þær hinar beztu
sinnar tegundar í Bandaríkjunum.
Á árinu 1982 héldu vikulegir flutningar á fersh'
um fiskflökum með flugvélum frá íslandi 11
Bandaríkjanna áfram á vegum S.H. og Coldwater’
í heild var um að ræða samtals 1.750 smál. Eink'
um eru þetta karfaflök, en einnig var um að raeða
nokkurt magn annarra fisktegunda. Flökunum var
flogið með flugvélum frá bandaríska fyrirtækiuU
Flying Tigers og Flugleiðum hf. einkum til Boston-
en minna magn til New York og Chicago. Horfur
eru á, að þessir flutningar muni stóraukast 1
feb./marz 1983, í allt að 2—3 flugvélar á viku með
rúmlega 40 smál. af flökum í hverri vél. Þessar söl'
196 —ÆGIR