Ægir - 01.05.1983, Qupperneq 64
Mynd 2 sýnir eyðublaðið, sem sent var út til vél-
stjóra, en það skýrir sig að mestu sjálft. í dálkum 4
og 5 eru skráðar upplýsingar um komutíma í höfn
og brottfarartíma úr höfn eftir viðkomandi veiði-
ferð, þannig að unnt er að finna hafnartíma í
klukkustundum. Fyrstu þrír dálkarnir gefa til
kynna nr. sjóferðar, veiðarfæri sem er notað og
löndunarhöfn (komuhöfn). í dálkum 7—10 er
skráð álag í inniveru, lesið af mælum í töflu.
Mögulegt er að skrá álag á einstökum fösum (skip
með riðstraumskerfi) í amper, eða álag í KW. í
dálki 11 er gert ráð fyrir að skrá upplýsingar um
lofthita úti, sem hefur áhrif á álagið, þar sem um
rafofnaupphitun er að ræða. í dálkum 12 og 13 eru
skráðar upplýsingar um hugsanlega notkun á land-
tengi svo og notkun á olíukyntum miðstöðvarkatli,
ef slíkur er í skipinu. Að lokum er óskað
upplýsinga um olíuáfyllingar, þannig að unnt sé að
NORDFORSK
Oliefisk TFF6
Skilgr.:Notkun
hjálparvéla í
höf n.
FISKIFELAG ISLANDS - TÆKNIDEILD
VERKEFNI 3206-06
iTfmabil (dags.)
x ** »
3 tn 3
'rt K)
O E c X
•o E
c o
2S
Mynd 2. Upplýsingar skráðar á eyðublað.
átta sig á hlutdeild útreiknaðrar hafnarnotkunar
miðað við heildarolíunotkun.
Álags- og eyðslumælingar:
Þær upplýsingar sem fengust með skráningu vél-
stjóranna gefa möguleika á að reikna út raforku-
notkunina í KWH (kilovattstund), sem er grund-
vallar þáttur. Til að geta áttað sig á olíunotkuninni
við að framleiða þessa orku er hins vegar ekki
nægilegt að þekkja aðeins raforkunotkunina,
óþekkt stærð er eyðslustuðull hjálparvélanna
undir breytilegu álagi.
Ef til vill er spurt hvort það meðalálag, sem fæst
út frá eyðublöðunum fyrir einstök skip, sé mark-
tækt, þ.e.a.s. hversu réttir eru mælarnir og hvernig
er aflestrarnákvæmnin. Til að ganga úr skugga um
þetta atriði hafa farið fram prufumælingar
(samanburðarmælingar) í um helmingi af úrtaks-
skipunum, og að jafnaði teknar tvær mælingar a
mismunandi álagi í hverju skipi.
Mælingar þessar voru gerðar með svonefndum
fjölsviðsmæli sem eftirfarandi lýsing á við:
Fjölsviðsmælirinn er af gerðinni Hioki 3105-
Með fjölsviðsmælinum má mæla riðspennu/jafn-
spennu og riðstraum/jafnstraum, en aflestur ai
mælinum fæst við vísisútslag. Einnig er mælirinn
búinn úttaki fyrir skrifara en það er eingöngu virkt
við straummælingu. Við spennumælingu er mæhr'
inn tengdur með leiðslum við það sem mæla á, en
við straummælingu er tengd við mælinn sérstök
mælitöng (sjá mynd 3), og er henni þá brugðið um
hinn straumhafandi leiði.
Mælisvið fjölsviðsvmælis eru þessi:
riðspenna/jafnspenna 0-25, 0-50, 0-250,
0-500 V.
riðstraumur/jafnstraumur 0-25, 0-50, 0-100,
0-250 A.
Mynd 3. Straummœling með fjölsviðsmceli. Ljósm.: Tcek'11'
deild, E R.
280 — ÆGIR