Ægir - 01.08.1985, Síða 6
SJAVARUTVEGSBÆR
Fyrri hluti
ísafjarðarkaupstaður er höfuð-
staður Vestfjarða. Hann er mið-
stöð opinberrar þjónustu, versl-
unar, skólahalds og samgangna í
héraðinu. En hann er fyrst og
fremst öflugur sjávarútvegsbær.
íbúar eru nú 3426 og hefur
fjölgað lítillega undanfarin ár.
íbúatalan var rúm 2500 allt frá
því um 1930 og þar til Eyrar-
hreppur var sameinaður kaup-
staðnum árið 1971. Þá hjálpuðu
Hnífsdælingar íbúatölunni upp
fyrir þriðja þúsundið.
Útgerbin
A ísafirði er rekin margþætt
útgerð og úrvinnsla sjávarafla.
Fjórir skuttogarar eru gerðir út
þaðan auk þriggja línubáta. Þá
eru gerð út frá staðnum tvö stór
rækjuveiðiskip sem eru á veiðum
á úthafsrækju allt árið og frysta
hluta aflans um borð. Loks eru
ótaldir smærri bátar 12-50 tonn
sem stunda rækjuveiðar í Djúp-
inu meðan leyfi fást, en á sumrin
eru hinir smærri á handfærum en
þeir stærstu sækja á úthafsrækju.
Og enn má bæta við opnum trillu-
bátum sem eru á skaki á sumrin.
Framleiðslan
Þrjú _stór hraðfrystihús eru
stærstu atvinnufyrirtækin í
bænum. Síðasta áratuginn hefur
átt sér stað mikil uppbygging í
öllum húsunum, ogeru þau hinar
glæsilegustu „fiskverksmiðjur".
Eitt lítið fyrirtæki stundar einnig
hraðfrystingu. Á ísafirði er mesta
Eftir Sigurð Pétursson
rækjuvinnsla á landinu. Eftir að
farið var að veiða úthafsrækju í
stórum stíl, hefur verið unnið við
rækju allt árið um kring. Fimm
rækjuvinnslur eru starfandi á ísa-
firði. Ein þeirra vinnur einnig
nokkuð af skelfiski, sem veiðist í
Djúpinu og Jökulfjörðum. Þetta
er undirstaðan í atvinnulífi bæjar-
ins. Sjávarútvegurinn er stóriðja
Vestfirðinga. Um aðrar fram-
leiðslugreinar er vart hægt að
tala.
Þjónustan
Öll öflug framleiðslustarfsemi
þarf góða og örugga þjónustu.
Mörg fyrirtæki hafa vaxið upp
með það hlutverk. Þar styður allt
hvað annað: framleiðslan, N0^(
ustan, íbúarnir og bærinn- >y
skal frægan telja Pólinn á lsat'r
Rafmagnsviðgerðir voru Þelö
starf í upphafi, en nú erfyridj16
einn stærsti framleiðandi ra^einu(11
búnaðarfyrirsjávarútvegsen1 .
getur. Er Póllinn eitt besta d35 ^
um hverju hægt er að áorka
samvinna og skilningur er )
hendi til þróunar nýiðnaðar.
Netagerð er hefðbundn3
handverk á ísafirði. Þar star *|f
Netagerð Vestfjarða, og ^e
gert um langa hríð. Skipasm1 ^
iðnaður á sér einnig langa
virðurlega sögu á ísafirði. M11 ■ ^
stendur ríkir algjör stöðnun
Höfnin á ísafirdi. Pollurinn ereitthvert besta hafnarstæði á landinu frá
hendi.
426-ÆGIR