Ægir - 01.08.1985, Side 28
Hraðfrystihúsid Hnífsdal
Hraðfrystihúsið hf., Hnífsdal
var stofnað árið 1941 af útvegs-
mönnum þar. Hóf það straxfram-
leiðslu það sama ár. Hraðfrysti-
húsið hefur byggt upp aðstöðu
sína á Völlunum innan við Hnífs-
dalsbyggðina, en fram af Völlun-
um var reist bryggja skömmu eftir
1930 sem síðar var lengd og
byggð á varnargarður. Bryggjan
er nú næsta lítið notuð nema til
að landa úr smábátum. Hrað-
frystihúsið er enn í eigu sömu
aðila og í upphafi, og hefur
byggst upp jafnt og þétt eftir því
sem bátar Hnífsdælinga hafa
borið meiri afla á land. Þar hafa
nú 70-80 manns atvinnu. Hrað-
frystihúsið á stærstan hlut í togar-
anum Páli Pálssyni sem sér því
fyrir nægu hráefni.
Norðurtangi
H raðfrysti húsið Norðurtangi
hf. var stofnað 1942. Aðalforystu-
maður þess framan af var Hálfdán
Hálfdánsson frá Búð. Félagið lét
reisa hraðfrystihús á Norðurtang-
anum á ísafirði og hefur starf-
semin síðan byggst upp þar.
Norðurtanginn gerir út togarann
Guðbjart og fiskiskipin Orra og
Víking III. Með frystihúsi og
útgerðinni samanlagðri er
Norðurtanginn stærsti atvinnu-
rekandinn í bænum með um 250
menn í vinnu.
Sund sf.
Sund sf. er litli bróðir í frysti-
húsafjölskyldunni. Aðaldriffjöður
þess er Halldór Hermannsson.
Hann gerði út rækjubát til ársins
1981 að hann seldi bátinn og tók
að hengja upp skreið og leggja í
salt. Á árinu 1983 varð kollsteypa
á saltfiskmarkaðnum og lenti
Halldór í slæmu tapi. Það var því
haustið 1983 sem hann venti sínu
kvæði í kross og setti upp lítið
frystihús. Vinnur hann nú afla frá
1-2 föstum bátum og auk þess
annan afla sem fellur til. Fjöldi
starfsmanna er um 20, fram-
leiðslan um 2 tonn af frystum
flökum á góðum degi. Halldór
segir fyrirtækið ganga, þar sem
það sé í eigin húsnæði, en ein-
ingin sé sennilega of lítil til að
bera sig vel. í sumar hefur Sund
sf. jafnframt séð um gámaútflutn-
ing fyrir handfærabáta á ísafirði.
Uppbygging og ný tæki
Uppbygging frystihúsantu>
hefur verið geisileg eftir 197 •
Hafa þau öll margfaldað húsrýnl'
sitt á þessum tíma. Bátarnir fórU
að stunda þorskveiðar allt áriðog
hráefni til frystingar jókst og ja'n
aðist yfir allt árið. Skuttogararnir
kórónuðu síðan verkið. Atvinn3
hefur síðan verið mjög jöfn
mikil við frystihúsin.
Um 1970 varð einnig stók
Frá isafirði um i 920. Hvítu húsin fremst á myndinni eru íshúsin sem seinna vaf
breytt í fyrsta hraðfrystihús á ísafirði. Síðan hefur Ishúsfélag ísfirðinga byggl
stórhýsi sitt á þessari tóð.
Úr vinnslusal Hraðfrystihússins íHnífsdal. Konurnarsnyrta ogpakka, en karlarnit
brýna eggvopnin.
448-ÆGIR