Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1985, Page 52

Ægir - 01.08.1985, Page 52
Nr. mæl. Nafnskips. 1 SvanurRE45 2 VíkingurAKlOO 3 HeiðrúníS4 4 Hákon ÞH 250 5 Örvar HU 21 6 Beitir NK 123 7 SigurbjörgÓF 1 8 Skipaskagi AK 102 9 Dagfari ÞH 70 10 Júní GK 345 11 Júlíus Geirmundss. ÍS 270 12 ÓlafurBekkurÓF2 Niðurstöður mælinga í framangreindum skipum hafa verið gefnar út í sérskýrslum og þeim dreift ítak- mörkuðu upplagi. Þá hefurýmsum upplýsingum úr þessum mælingum verið komið á framfæri á annan hátt; í gegnum fyrri greinar, upplýsingablöð, erindi, kynningarfundi og einnig á myndbandi. Það er þó mat greinarhöfunda að æskilegt sé að gera skrúfu- þættinum frekari skil í grein sem þessari, sem vænt- anlega nær til stærri hóps. I þessari grein er komð inn á niðurstöður mælinga í þeim tveimur skipum hér að framan, þar sem skrúfubreytingar áttu sér stað, og mælt var fyrri og eftir til að fá samanburð. Skip þessi eru Júní GK og Júlíus Geirmundsson ÍS. Jafnframt er komið inn á almenn atriði, gerð úttekt á skrúfuþættinum í ákveðnum hluta flotans og fjallað um skrúfubreyt- ingar, sem nú eru að færast í vöxt. Skrúfufræöin Skrúfufræðin er margra áratuga gömul, en þó réttara að segja hana um aldargamla, er fyrstu fræði- mennirnir á þessu sviði settu fram sínar „teoriur" á síðustu áratugum fyrri aldar (Rankine, R.E. Froude, Greenhill, W. Froude, Taylor o.fl.). Greina mátti milli tveggja megin fræðisetninga, þ.e. hreyfiafls- kenningarinnar (momentum theory) og blaðagna- kenningarinnar (blade-element theory), sem báðar höfðu sína kosti og galla. Megin ágæti hinnar núver- andi fræðisetningar, iðustraumskenningarinnar (vortex theory), er það að hún sameinargóðu kostina úr báðum eldri fræðisetningunum. Þróunarsaga skipsskrúfunnar er löng. Fara má afturtil ársins 1 752, en þáfékk D. Bernoulli verðlaun frönsku vísindaakademiunnar fyrir hönnun á hjóli með litlum spöðum, sem staðsettir voru í hallandi stöðu á pílárum hjólsins. Hugmynd þessa má finna aftur í hönnun J. Bramah (1785 — sjá mynd 1), og var aðeins reynd á líkani, en eins og margar uppfinn- ingar síðari tíma, var hún aldrei notuð. Það var ekki fyrr en árið 1804 sem J.C. Stevens í New York tókst ÆGIR-472 Steer. ofShips). að knýja lítinn bát áfram með tveimur 4ra blaða skrúfum. Hins vegar ollu vandamál með gufuvéln1 því að hann neyddist til að skipta skrúfunum út tyr spaðahjól. Árið 1812 fékk Josef Ressel einkaley*1 a skrúfu sem var einskonar snigill með 1 Vi vindi'T" (mynd 2). Ressel kom þessari skrúfu fyrir í opi n11 stýris og afturstefnis á gufuskipinu Civetta og ger. prófanir árið 1829, en vélarbilun olli því að tilraumj1 stóð ekki lengi. Um þetta leyti voru ýmis einkaley veitt, bæði í Frakklandi og Englandi, án raunhastra útkomu, þar til árið 1836, en þá tókst Engle'1 ingnum F.P. Smith að knýja 6 tonna bát með 6 a gufuvél og tréskrúfu af sömu gerð og skrúfa Resse s' en með tvo heila vindinga. Óhappolli þvíaðskruta brotnaði í einni tilraunasiglingunni, en niðurstóo sýndu umtalsverða aukningu í ganghraða. Eftir þet*a óhapp beindist athygli hans að kostum þess að ha 1 minna blaðflatarmál, og frá og með þeini tíma hann aði hann skrúfur með fleiri en styttri vindinga. E Ships).

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.