Ægir - 01.08.1985, Blaðsíða 55
^Vnd 5: Skissuteikning af afturskipi lúlfusar Geirmundssonar
Vir breytingar (Skipatækni h. f.).
™ Gamla og nýja skrúfan íJúlíusi Geirmundssyni ÍS -
V Om Oliefiskprojektet nr. 9).
gamla og nýja skrúfan eru bornar saman (sjá
J^Vnd 7), þá snerist gamla skrúfan 375 sn/mín og
yermál hennar var 2050 mm, en nýja skrúfan snýst
3 tur á móti 148 sn/mín og þvermál hennar 2900
rnm.
Mun umfangsminni breytingar voru gerðar í júní
GK 345 til að bæta skrúfunýtnina. Snúningshraði
skrúfu var færður niður úr 244 sn/mín í 200 sn/mín
með því að skipta um tannhjól í gír, komið fyrir
skrúfuhring (var ekki) og tekið af skrúfublöðum til að
aðlaga þau skrúfuhringnum, en við það minnkaði
þvermál skrúfu úr-3200 mm í 3020 mm.
Tæknideild hefur tekið saman í töflu I yfirlit yfir
skrúfubreytingar í skuttogurum þar sem snúnings-
hraða og skrúfuþvermáli hefur verið breytt.
TAFLA 1: Skuttogarar stærri en 40 m. Breyt. Skrúfafyrir Skrúfaeftir
Nr. Nafnskips lokið þv. /sn.hr. „þv. /sn.hr.
1 Júní CK Febr. '84 3200/244 3020/200
2 JúlíusGeirm. ÍS Júní '84 2050/375 2900/148
3 Guðbjörg (S Nóv. '84 2650/230 3000/1 50
4 Ásbjörn RE Mars'85 2050/375 2800/150
5 Sjóli RE Apr. '85 1900/350 2900/130
6 GuðbjarturíS Maí'85 2150/375 2900/140
7 Jón Baldvinss. RE Júlí'85 2050/365 2900/150
8 RunólfurSH (áætl.) Sept '85 2150/375 2900/144
Auk júní GK var aðeins eitt skipanna með gír fyrir,
þ.e. Guðbjörg ÍS. Breytingar í því skipi fólust í tann-
hjólaskiptum í gír og nýjum blöðum með heldur
meira þvermáli og þurfti ekki að gera neinar breyt-
ingar á afturskipi. Með þessu var hægt að bæta nýtn-
ina nokkuð, en rétt er að taka það fram að skrúfa
skipsins var tiltölulega hagkvæm fyrir. í Ásbirni RE
voru skrúfubreytingar gerðar samfara vélaskiptum.
Öll skipin voru með skrúfuhring fyrir breytingar,
nema Júní GK, ogíöllum tilvikumfengu skipin nýjan
skrúfuhring.
Rétt er að geta þess að fyrir umrætt breytingartíma-
bil höfðu átt sér stað ákveðnar breytingar á skrúfu-
búnaði togaraflotans. Héreráttviðskrúfuhringi, sem
settir voru á allmörg skip og samkvæmt samantekt
Tæknideildar var settur hringur á 25 skuttogara á
árunum 1977-1983. Stærsti hluti þessara skipa eru
þrír hópar systurskipa, japönsku skuttogararnir tíu,
skipt var um blöð og þvermál minnkað úr 2.6 m í
2.3 m; fimm skuttogarar af minni gerð smíðaðir á
Spáni (upphaflega 2.5 m skrúfa) og fjórir innfluttir
pólskbyggðir skuttogarar (upphaflega 2.7 m skrúfa).
í síðarnefndu hópunum var nær undantekningarlaust
tekið af blöðum og þvermál minnkað um 10 cm.
Niöurstöbur mælinga
Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu niður-
stöðum mælinga í þeim tveimurskipum, semTækni-
475-ÆGIR