Ægir - 01.04.1986, Page 14
milli mála að hér var um verka-
lýðsfélag að ræða. Var félaginu
því valið þetta sérstæða nafn. Á
þessum árum var oft lítið urn
atvinnu og mönnum því vissara
að aðhafast ekkert sem illa gat
komið sér á efri stöðum. Ekki fer
sögum af því hvernig félaginu
tókst að framfylgja markmiðum
sínum, eða hvort það hafi orðið
félögum sínum til framdráttar í
lífsbaráttunni.
Almenningur á Höfn byggði
afkomu sína allt eins mikið á
landbúnaði og á launavinnu.
Fyrir utan vertíðina sem stóð fjóra
til fimm mánuði á ári, var lítið um
atvinnu frá því í maí og til loka
ársins. Menn urðu því að snúa sér
að einhverju öðru til að hafa í sig
og á. Flestir áttu nokkrar skjátur
sem þeir heyjuðu fyrir á sumrin,
þó nokkrir áttu kú, og aðrir
hænsni. Þá vargarðholaviðhvert
hús. Þannig mátti drýgja björgina
þann tíma ársins sem vinna var
lítil. Svo var alltaf hægt að ráða
sig í kaupavinnu yfir sumarið,
eða jafnvel sækja vinnu í aðra
landshluta.
Á stríðsárunum seinni urðu
mikil umskipti frá því sem var
fyrir 1940. Atvinna var næg á
Höfn og mannlífið blómstraði.
Þá efldist hagur verkalýðs og hug-
urinn einnig. I janúar 1942 var
ákveðið að leggja niður „atvinnu-
félagið", en sama dag var stofnað
nýtt verkalýðsfélag á Höfn sem
nefndist Jökull. Ástæðan fyrir
þessum sviptingum voru þær að
forystumenn í atvinnurekstri á
Höfn voru orðnir fyrirferðamiklir
í hinu eldra félagi, og var þetta
leið verkamanna til að snúa þá af
sér.
Verkalýðsfélagið Jökull var
stofnað af 39 verkamönnum og
fyrstu stjórn þess skipuðu Bene-
dikt Þorsteinsson, Óskar Cuðna-
son og Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Síðan hefur Jökull unnið að
bættum hag alls „Hafnarverka-
lýðs".
Stríösárin mala gull
Stríðsárin 1941-1945 voru
fiskimiðin gjöful. Á Höfn reru þá
fleiri bátaren nokkru sinni, ogafl-
inn var aldrei meiri fyrren þá alk3
síðustu ár. Á vertíðinni reru ar
hvert um 30 bátar, flestir 38 árið
1945. Heimabátar voru 3-4 en
hinir víðsvegar að af Austfjörðun1
og einnig frá Norðurlandi.
Aflinn var allur fluttur út ísvat'
inn til Bretlands. ís var tekinn a
vötnum og mulinn eftir þörfui11'
en einnig var sóttur ís í Hoffel|s'
jökul á vegum kaupfélagsie^
Hlýtur það að vera einsdænii a
jökullinn væri notaðurtil að verþ
fisk til útflutnings. Fiskinum var
umskipað í flutningaskip og ísað'
ur, en skipin sigldu síðan á hafa,r
í Bretlandi. Var það hættusiglin@'
svo sem þekkt er, en verðið fyr'r
fiskinn var betra en áður þekktist-
Árið 1944 sigldu þannig 65 fi^'
tökuskip hlaðin frá Höfn í Horna'
firði.
Atvinnan var mikil við umsetj1
ingu aflans og voru það mikil V
brigði frá því sem áður þekkti4_
Á stríðsárunum var þannig stig|U
skref í þá átt að Hafnarbúar
byggðu afkomu sína að mestrl
leyti á sjávarútvegi.
Nýtt athafnasvæöi fyrir atvinnureksturinn á Höfn, á uppfyllingu austuraf Heppunni (t.v.). Frá höfninni, endurbættur haf^1
kantur, þar sem áöur var Hafnarvík (t. h.).
202 -ÆGIR