Ægir - 01.04.1986, Blaðsíða 16
að byggingu hraðfrystihúss a
Höfn.
Hins vegar hélt kaupfélagi^ |
einnig áfram að verka saltfisk og |
skreið eins og áður, og átti auk
þess frystihús sem reist var 1
tengslum við sláturhús félagsir15 j
á árunum 1943-45, til frystingar
á kjöti. Áhugi kom upp hjá kaup' ;
félaginu að nýta frystihúsið 11
hraðfrystingar á fiski og voru frys*
þorskflök þar í fyrsta sinn áriö
1952.
Með nýjum kaupfélagsstjóra
árið 1953, Ásgrími Halldórssynf
urðu hin nýrri viðhorf ofan á og
þaðan í frá tók kaupfélagið alla í
forystu í uppbyggingu fiskiðnaðar J
á Höfn.
Kaupfélagið keypti upp hlu1
annarra eignaraðila í Fiskiðjunn1 J
árið 1954 og hóf þegar stækkun
frystihússins svo þar yrði fu^
komin aðstaða til frystingar a
fiski. Síðan hefur stöðugt verio :
unnið að uppbyggingu sjávarút'
vegsins á Höfn bæði fiskiskip3' i
flotans og fiskiðnaðarins. Verða
helstu áföngum þess gerð skil 1
sérstökum köflum hér á eftir.
Uppbygging - afli - íbúar
Fjölgun Hornafjarðarbáta
hefur verið mikil síðustu áratug1' s
þó svo fjöldinn segi ekki nema
hálfa sögu, því jafnframt hata
bátarnir orðið sífellt stærri. San1'
fara aukinni útgerð og fiskverku'1
hefur íbúafjöldinn aukist. Her
koma tölur yfir fjölda báta, íbúai
fiskafla og tegundir fiskafla ‘r
Höfn síðustu ár og áratugi.
Fjöldi fiskiskipa:
1955 ................ 5 bátar
1960 ................ 8 bátar
1965 ................ 8 bátar
1970 .............. 13 bátar
1975 ............. 16 bátar
1980 ............... 18 bátar
1985 ............... 20 bátar
og 1 skuttogari.
Fiskiðjan h.f.
Atvinnuástand var fremur bág-
borið á Höfn kringum 1950 og
var mikið rætt um úrbætur í þeim
málum á vegum verkalýðsfélags-
ins, útgerðarmanna og hreppsfé-
lagsins. Kaupfélagið, sem var
allsráðandi í atvinnulífi á
staðnum var hins vegar seint að
taka við sér í þessu efni. Sumarið
1951 varsvostofnaðhlutafélagið
Fiskiðjan á Höfn. Hluthafar voru
63 einstaklingar, hreppurinn,
trésmiðja á staðnum og kaupfé-
lagið, sem lagði fram helming
hlutafjár. Flestir vinnufærir menn
á staðnum tóku þátt í stofnun
félagsins. Næstu tvö árin var
komið á fót fiskmjölsverksmiðju
og lifrarbræðslu, en kaupfélagið
hætti starfrækslu lifrarbræðslu í
eigu þess sem orðin var gömul og
lúin. Þá var hafinn undirbúningur
Tvö kunnugleg nöfn íbátaflota Hornfirðinga: Steinunn og Carðey.
Ásgrímur Halldórsson útgerðarmaður og fyrrverandi kaupfélagsstjóri. Hann er
meðeigandi og framkvæmdastjóri Skinneyjar hf. sem gerir út Steinunni og Frey.
Ásgrímur hefur átt mikinn þátt í uppbyggingu sjávarútvegs á Höfn síðustu áratugi.
204 - ÆGIR