Ægir - 01.04.1986, Síða 39
Vélsmiðja Hornafjarðar
Höfn er starfandi vélsmiðja sem
ejur með höndum margháttaða
Piónustu á sviði málmiðnaðar.
^élsmiðja Hornafjarðar h.f.
Starfr®kir vélaverkstæði, bíla-
yerkstæði, smurstöð og hjól-
^rðaviðgerðir og verslun með
yarahluti og búnað í báta, bíla og
eiri vélknúin tæki. í þessari
?arr|antekt verður aðeins litið á
Pa starfsemi vélaverkstæðisins
Sern tengist sjávarútveginum.
^élsmiðja Hornafjarðar h.f.
I'ar stofnuð 1973 með samvinnu
Ve8gja lítilla vélsmiðja sem áður
fdrfuðu 1 bænum og fleiri aðila á
°tn. Eigendureru rúmlega þrjá-
,lu einstaklingar og fyrirtæki, þar
nieðal eru nokkrir starfsmenn
Vnrtækisins. Starfsmenn fyrir-
®kisins eru frá 25 og upp í 35
e t|r árstíma og verkefnum.
^élaverkstæðið hefur unnið að
þjónustu við útgerðina á
staðnum. Mest hefur það verið
almennt viðhald, endurbætur á
bátunum og vélaviðgerðir. Einnig
hefur fyrirtækið tekið að sér til-
boðsverk við endurbætur og
endurnýjun á bátum og búnaði
þeirra. Pá hefur Vélsmiðjan æ
meira farið inn á braut fram-
leiðslu á ýmsum búnaði fiski-
skipa.
Sú starfsemi hófst nieð fram-
leiðslu reknetahristara við veiðar
á síld í reknet. Meirihluti þeirra
báta sem stunda reknetaveiðar er
nú komin með slíkan búnað.
Hins vegar eru reknetaveiðarnar
á undanhaldi, svo ekki þykir
mikil framtíð í sölu á þessu sér-
staka tæki nú sem stendur.
Reknetaveiðar og humarveiðar
eru sérgreinar Hornfirðinga,
segja menn, og þeir í Vélsmiðju
Hornafjarðar hafa því sérhæft sig
nokkuð í búnaði til humarveiða.
Þar má helst nefna tvennt: Hum-
arþvottavél og sérstaka toghlera
fyrir humartroll. Þessi búnaður
hefur verið þróaður sérstaklega á
Hornafirði í samstarfi við skip-
stjórnarmenn á humarbátum.
Þaðermjögmikilvægtöllum iðn-
aði sem þessum að hafa heima-
markað við bæjardyr þegar þróa
þarf nýjan búnað, því bestur
árangur næst yfirleitt ekki nema
með góðu samstarfi framleiðanda
og notanda og skilningi á milli
aðila.
Af öðrum framleiðsluvörum
má nefna aðra gerð toghlera,
meðal annars fyrir rækjuvörpur,
hverskyns vindubúnað, vírastýri
á spil og netadreka. Framleiðsla
á háþrýstum vökvavindum hófst
fyrir tveimur árum, og hafa þær
selst um allt land. Þykir þeim
Hornfirðingum að framleiðsla sín
hafi staðið sig í kapphlaupinu um
kúnnana, en mikil samkeppni er
orðin í þessari iðngrein hér á
landi.
ÆGIR - 227