Ægir - 01.11.1986, Blaðsíða 13
skóli á framhaldsskólastigi
þannig að unnt sé að stunda
aðfararnám að skólanum í
öðrum framhaldsskólum
landsins.
Sett verði rúm rammalöggjöf
um sjávarútvegsskóla sem
hamli ekki skólanum að fylgj-
ast með þróun atvinnulífs.
Að stofnað verði fræðsluráð
sjávarútvegs skipað fulltrúum
hagsmunasamtaka, rann-
sóknastofnana og ráðuneyta
sem verði stefnumarkandi í
fraeðslumálum sjávarútvegs-
ins.
■ Skólinn starfi í fimm deildum,
siglingafræðideild, vélfræði-
deild, fiskvinnsludeild, fisk-
eldisdeild og endurmenntun-
ðrdeild.
Tillögum nefndarinnar var vel
ekið og af umræðum á ráðstefn-
^ni rnátti ráða að umfangsmik-
1 a aðgerða er þörf til bættrar
^rintunar í sjávarútvegi.
hað er nauðsynlegt í umræðu
^ rnenntamál í sjávarútvegi að
, u§a að þeim breytingum sem
u[tna að verða í greininni í fram-
o ö,nni' ^'hlar breytingar hafa
rðið í vinnslu sjávarafla á
Ur|danförnum árum og á næstu
,arurn munu stórkostlegar tækni-
rarnfarir verða á þessu sviði.
arnfara aðlögun sjávarútvegs að
essari nýju tækni mun fylgja
au,'n krafa um hæfara fólk. Sjáv-
I ru^Vegsfyrirtæki munu í framtíð-
hafa þörf fyrir sérmenntað
fólk
af öllum þeim námsbrautum
la8t er til að teknar verði upp
við
stavarútvegsskólann.
^ erði skólakerfið ekki reiðu-
u'ð að takast á við nýjar kröfur
J'nnulífsins um sérmenntað
af| ' munum við dragast hratt
s(aUr Ur öðrum þjóðum. Til að
tjpk- ast samkeppni verða fyrir-
I J að taka upp nýja fram-
^ s|utækni, vöruþróun og
arkaðsstarf. Það er því fyrirsjá-
anlegt að þörf verður fyrir fólk
sem er menntað á sviði markaðs-
og sölumála, stjórnunar, vöru-
þróunar og fyrirtækjarekstrar.
Efla þarf fræðslu um mikilvægi
sjávarútvegs í grunnskólum og
framhaldsskólum landsins og
kynna nemendum starfsemi sjáv-
arútvegsins. Skipulagi, stjórn og
námsframboði skóla í sjávarút-
vegi þarf að breyta þannig að það
hafi aukið notagildi fyrir atvinnu-
lífið. Námið þarf að vera þannig
skipulagt að ekki séu í því blind-
götur eins og nú er. Fólk sem
bæta vill við sig þekkingu verður
að eiga greiða leið í háskóla,
tækniskóla eða aðrar mennta-
stofnanir. Með því myndi ásókn í
nám er lýtur að sjávarútvegi auk-
ast og sérmenntuðu starfsfólki
fjölga.
Rannsóknir
Við höfum með réttu verið stolt
af okkar sjávarútvegi og fram-
leiðsluvörum hans. Fiskafurðir
frá íslandi hafa getið sér gott orð.
Það höfum við nýtt okkur til að fá
hærra verð fyrir afurðirnar en
keppinautar okkar. Fram til þessa
höfum við verið mjög fljótir að
taka upp tækninýjungar á sviði
veiða og vinnslu og íslenskur sjáv-
arútvegur hefur því staðið í
fremstu röð í tæknivæðingu. Við
höfum einnig þá yfirburði
umfram flesta okkar keppinauta
að geta að mestu einir ráðið nýt-
ingu fiskveiðiauðlindarinnar þar
sem flestir mikilvægustu stofn-
arnir eru innan íslenskrar efna-
hagslögsögu. Við þurfum því í
mun minna mæli en grannþjóð-
irnar að standa í samningaþófi
um skiptingu á heildaraflamagni
úr sameiginlegum stofnum. Hér
eigum við því mest undir sjálfum
okkur að stjórna skynsamlega
nýtingu auðlinda hafsins. For-
senda slíkrar stjórnunar hlýtur að
vera góð þekkingáfiskstofnunum
og lífríki hafsins umhverfis ísland.
Við höfum því réttilega lagt mikla
áherslu á hafrannsóknir á undan-
förnum árum. Við megum hins
vegar ekki sofna á verðinum.
Keppinautar okkar eru í stöðugri
sókn. Þannig hafa t.d. Kanada-
menn á síðustu árum náð mjög
miklum árangri við endurskipu-
lagningu á sínum fiskiðnaði. Það
saxast því stöðugt á það forskot
sem við höfðum umfram Kanada-
menn í gæðamálum. Norðmenn
hafa lagt mikla áherslu á rann-
sóknir á sviði fiskiræktar og fisk-
vinnslu og eru að skapa sér stöðu
sem forystuþjóð í heiminum á
þessu sviði. Dönsk stjórnvöld
hafa nú ákveðið að verja til við-
bótar við venjulegarfjárveitingar,
500 milljónum danskra króna
eða nærfelt 2.700 milljónum
íslenskra króna til sérstaks átaks í
rannsóknum tengdum sjávarút-
vegi á næstu fjórum árum.
Markmið þeirra er að skapa sér
yfirburði yfir aðrar þjóðir á sviði
fiskiðnaðar hvað varðar fram-
leiðsluaðferðir og gæði. Til
samanburðar við þessi fjárfram-
lög Danaerfróðlegtað lítatil þess
að á fjárlögum ársins í ár er fjár-
veiting til Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins ríflega 27 milljónir
króna eða einn hundraðasti af
viðbótarfjárveitingu Dana. Þaðer
tímabært að við stöldrum við og
íhugum hvernig hægt sé að
tryggja það að við verðum áfram
í fremstu röð í sjávarútveginum.
Forsenda fyrir því að við höldum
þeirri forystu sem við höfum haft
er að leggja aukna áherslu á haf-
rannsóknir og rannsóknir varð-
andi vinnslu sjávarafurða. Með
því móti einu munum við geta
keppt við ríkisstyrktan sjávarút-
veg grannþjóða okkar.
Af hálfu sjávarútvegsráðuneyt-
isins hefur verið kappkostað að
fá fjárveitingar til Hafrannsókna-
stofnunar og Rannsóknastofn-
ÆGIR - 653