Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1986, Síða 20

Ægir - 01.11.1986, Síða 20
aðfinna leiðirtil þessað láta ísfisk sæta sömu reglum um verðjöfnun og unninn fisk. Til dæmis þannig að greitt verði verðjöfnunargjald af hverri ísfisksölu þegar greitt er í sjóðinn af unnum botnfiski, sambærilegt við það sem greitt er til jafnaðar af unnum fiski, en án tillits til söluverðs á ísfiski. Hið gagnstæðagildi, þegargreitterúr sjóðnum út á unninn fisk. Verð- jöfnun á ísfiski miðist því ekki beinlínis við söluverð á honum. Aðrir nefndarmenn skiptust í afstöðu sinni til þessa máls og gerði nefndin því ekki ákveðnar tillögur um það. Þetta mál er vandasamt, bæði um form og efni. Strangt tekið er sjóðurinn lögum samkvæmt bundinn við unnar afurðir — afurðir fiskiðnaðarins - eins og heiti hans ber með sér. ísfiskur verður varla talinn til afurða fisk- iðnaðarins. Þegar af þessari ástæðu virðist þurfa lagabreyt- ingu til að láta Verðjöfnunarsjóð- inn nátil ísfisks. Ánefaererfittað setja viðmiðunarverð fyrir ísfisk, þar sem markaðsaðstæður eru sí- breytilegar nánast frá degi til dags, ef ekki frá morgni til kvölds og gæði aflans einnig breytileg. Hvað sem þessu líður, getur sjóð- urinn hins vegar með starfsemi sinni haft áhrif á það, hvort afl- anum er ráðstafað til vinnslu hér á landi eða fluttur ísaður úr landi. Ég tel þó, að verðjöfnun hefði ekki skipt sköpum um ísfisksölur hvorki í fyrra né á þessu ári, en þær aðstæður gætu komið upp að húngerðiþað. Þaðsemsennilega ræður einna mestu um vaxandi áhuga á ísfisksölu í gámum, annað en hagstætt verð á fiskinum, er sú staðreynd, að hlutur sjómanna er miklu betri, þegar þannig er selt. Þetta er fyrst ogfremsttekjuskiptingarmál milli samningsaðila, en er ekki á verk- sviði hins opinbera. Um rækju, sem fryst er óskel- flett um borð í veiðiskipum, gegnir svipuðu máli og um ísfisk- inn að þessu leyti. Nýlega hefur verið tekin ákvörðun um það í sjóðsstjórninni að láta jafna verð á heilfrystri smárækju, sem ýmist fer beint til útflutnings eða til vinnslu hér á landi. Það er brýnt að finna lausn á þessu máli, sem tryggi að starfsemi sjóðsins hindri það ekki, að framleiðendur geti jafnan valið hagkvæmasta kost við ráðstöfun aflans. Stofnfjársjóður fiskiskipa Nefndarmenn urðu sammála um drög að frumvarpi um breyt- ingar á lögum um Stofnfjársjóð fiskiskipa, til að einfalda fram- kvæmd þeirra með tillit til hinna nýju ákvæða um greiðslumiðlun í skiptaverðslögunum frá því í vor. Megintilgangur þessa frum- varps er annars vegar að gera það alveg skýrt, að eftir afnám sjóða- kerfisins er Stofnfjársjóðurinn eingöngu greiðslufarvegur innan útgerðarinnar og kemur hluta- skiptum ekki lengur við á nokk- urn hátt, og hins vegar að auð- velda eigendum skipa, sem standa í skilum eða eru skuld- lausir við Fiskveiðasjóð íslands, að fá endurgreitt án tafar það fé, sem berst inn á reikning þeirra í Stofnfjársjóði samkvæmtgreiðslu- miðlunarlögum. Sjávarútvegsráð- herra hefur nú lagt þetta frumvarp fram á Alþingi. Þáttaskil í sjávarútvegi Lagasetningin í vor um afnám sjóðanna felur í sér róttækar breytingar á fjárhagslegu skipu- lagi sjávarútvegsins. Hún ein- faldar allar greiðslur og tengir betur saman hagsmuni, þannig að verðmyndunarkerfið þjónar betur en áður þeim tilgangi að sýna raunveruleg verðmæti í við- skiptum á skýran og ótvíræðan hátt. Hliðargreiðslur, sem faera fé á milli fyrirtækja og greina án þess að Ijóst sé hver borgar hverjum hvað, rugla menn Þv' ekki lengur í ríminu. Framkvæmd þessarar víðtæku skipulagsbrey1' ingar í fjármálum sjávarútvegs hefur gengið vonum frarnat- Helst voru það ákvæði um slysa' og örorkutryggingu og lífeyns- sjóðsmál smábátamanna, serri vöfðust fyrir mönnum í byrjun- Það er í sjálfu sér mjög eðlileS^' því þetta eru nýmæli í lögum og eðlilegt að nokkurn tíma taki a finna þeim heppilegan farveg- Allir smábátamenn, sem greiða i greiðslumiðlunarkerfið eru í dag sjálfkrafa slysa- og örorkutryggð' ir, og greiða nokkurt iðgjald í11' eyrissjóð, en á því hafði veri misbrestur. Hver smábátamaðer hefur sinn sérreikning og fær51 fé endurgreitt, þegar hin lög' bundnu gjöld hafa verið greid ■ Landssamband smábátaeigend3 virðist ánægt með þessa greiðslu tilhögun. Raunar er ekki arina að heyra en flestir aðrir séu einme sáttir við þær breytingar, sem fylgt hafa afnámi sjóðakerfisins- Þessi lög marka nokkur þárta skil í íslenskum sjávarútveg1- Frumskógur millifærslna hen verið ruddur, þannig að ver myndun á fiski er nú Ijós og alim samanburður á fiskverði, bæ hér innanlands og við fiskver erlendis, er auðveldari. Nú & að vera hægara að losa um ver myndun í sjávarútvegi á gefa fiskverð frjálst og koma a uppboðsmörkuöum, þar 5 grundvöllur er fyrir þeim. San , leikurinn er sá, að verðmyndjm sjávarútvegi var orðin a , flókin. Sú einföldun á verðmyn unarkerfinu og hlutaskiptunu sem fylgir afnámi sjóðann ' dregur bæði úr skriffinnsku, ^ þar með kostnaði, og úr hætru 660 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.