Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1986, Side 26

Ægir - 01.11.1986, Side 26
vegna tjónamála eða þegar hefð- bundið fiskmat dugar ekki til. Hins vegar vil ég leggja áherslu á það, að slík störf viljum við ein- ungis vinna sem ráðgefandi aðilar en ekki samkvæmt laga- boði og að þeir sem eftir þessari þjónustu leita geti snúið sér til annarra aðila ef þeim býður svo við að horfa. Lögbundið úrskurð- arvald og ráðgjafarstörf fara illa saman og verður að halda þeim fyrrnefndu í algjöru lágmarki á Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins. Hinu er ekki að leyna að á þeim sviðum þar sem stofnunin hefur aflað sér mikillar reynslu í gæðamati, t.d. vegna útflutnings á fiskmjöli, hafa plögg stofnunar- innar nánast sama gildi og opin- ber útflutningsplögg. Á þeim vottorðum er skýrt tekið fram hver tekur sýnið sem rannsóknin byggist á og í mörgum tilfellum er þar um framleiðendur sjálfa að ræða. Stofnunin ber því ekki ábyrgð á niðurstöðunum nema að því leyti sem nákvæmni sýna- tökunnar segir til um. Þetta leiðir hugann að hlut- verki hins opinbera í gæðamati á fiskafurðum. Hér á landi hefur umræðan á síðari árum færst frá þeirri hugmyndafræði að ríkið eigi að hafa auga á hverjum fingri og fylgjast náið með framleiðend- um. í staðinn hefur þeirri skoðun vaxið fylgi að framleiðendur eigi sjálfir að bera ábyrgð gagnvart stjórnvöldum um gæði eigin framleiðslu og annast gæðaeftir- lit. Margvísleg rök hníga að því að þetta sé rétt stefna. Eins og fjöl- mörg dæmi sanna getur hið opin- bera aldrei „ábyrgst" gæði allra þeirra fiskafurða sem fluttar eru frá landinu, til þesseru vöruflokk- arnir of margir, gæðakröfur ein- stakra kaupenda það misjafnar, að ekki sé minnst á margslungna löggjöf viðskiptalandanna varð- andi matvælainnflutning. Virkt gæðaeftirlit getur vart verið á færi annarra en vel upplýstra fag- fnanna sem starfa ífyrirtækjunum sjálfum og bera ábyrgð gagnvart hinu opinbera um að farið sé að settum lögum. Við höfum til- hneigingu til að tengja þessi mál þekkingue\nn\ saman. Þóttþekk- ingin sé vissulega mikilvæg þá kemur fleira til. Þar á ég við það sem nefnthefurveriðs/ðfræð/við matvælaframleiðslu og viðskipti með þau. Erlendis eru starfandi alþjóðlegar nefndir sem fjalla um þessi mál. Siðfræði við matvæla- framleiðslu snýst einfaldlega um það að menn meðhöndli matvæli einungis með hætti sem þeir vita réttastan og bestan og sem blekkir ekki viðskiptavininn, með öðrum orðum að einungis löglegum og viðurkenndum aðferðum sé beitt við framleiðsluna. Þekkingokkar nær ekki lengra en svo að oft getur verið illgerlegt eða ómögu- legt að sanna eftir á að viss með- höndlun á matvælum hafi átt sér stað. Um getur verið að ræða íblöndun efnasambanda sem síð- an brotna niður í vörunni og erfitt er að greina. Gott dæmi um þetta er geislun á matvælum. Það hefur lengi verið þekkt að með geislun má auka verulega geymsluþol matvæla eða eyða sýklagróðri. I flestum löndum er geislun í þessu skyni þó bönnuð þarsem vísinda- menn hafa enn ekki látið sann- færast um að ekki geti myndast skaðlegefni við geislunina. Hins vegar eru engar mælingaaðferðir þekktar í dag sem geta óyggjand' fært sönnur á að matvæli hafi verið geisluð. Hitt er svo annað mál að margt bendir til þess að takmörkuð geislun ýmissa mat- væla verði víða leyfð á næstu árum. íslenskur fiskur er seldur sem ómenguð náttúruvara og kaup' endur okkar erlendis vita að við erum íhaldssamir varðandi notkun aukaefna í okkar fisk/ a.m.k. samanborið við það sem tíðkast annars staðar. MikiIvaeg| þessara þátta í sölustarfseminn' mun vafalaust fara vaxandi a komandi árum á tímum meng' 666-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.