Ægir - 01.11.1986, Side 42
inni Dunwich, sem nú er komin
undir sjó.
Humberbæirnir, einkum Hull,
koma og fljótt við sögu, þá Bristol
og Yarmouth, Ipswich og London
og reyndar margir fleiri bæir á
austurströndinni, og sumir þeirra
fiskibæja nú horfnir, svo sem
Dunwich. Það var ekki um neina
smáræðis siglingu að ræða
hingað til lands frá Englandi á
15du, og 16du öld. Það er getið
um 149 skip árið 1528 og eflaust
ekki færri oft á 15du öldinni, en
þá vantar sem fyrr segir glöggar
heimildir, aðeins vitað að sóknin
var mikil alla þá öld.
Siglingin til íslands frá Lynn tók
til jafnaðar 14 daga, siglingahrað-
inn sagður jafna sig upp með 70
sjóm. á sólarhring í skaplegu
leiði. Skipin komu hingað, þau
fyrstu í byrjun marz og héldu út
fram í ágúst-september.
Englendingar komu sér strax
upp bækistöðvum í landi, fyrst í
Vestmannaeyjum, þar sem þeir
urðu strax fjölmennir með vetur-
setu, 1419 eru þeirorðnir þar 300
að sagt er, og bjuggust þar um
með húsakosti og hlóðu sér virki.
Duggur þeirra hafa svo siglt heim
með haustinu, en vetursetumenn
keypt og verkað fisk landsmanna
fyrir kaupskipin að flytja heim.
Trúlega hetur margt verið með
svipuðum hætti á 16du öld og
þeirrar 15du í kaupskap og fisk-
veiðum nema skipin stækkað.
Það eru því mikil not að ýmsum
fróðleik, sem Edgar J. March,
höfundur bókarinnar Sailing
trawlers hefur tínt saman um
íslandsveiðar á 16du öld, en
15du aldar heimildir segir hann
engar finnanlegar um veiðarnar
né sóknina yfirleitt.
March er með í bók sinni
útgerðarreikning íslandsfars
1545, sem er að leggja uppí „the
Long Voiage". (Löngu sjóferðina)
Þess ber að gæta, að ekki var
verið að kaupa allt nýtt eða frá
grunni til skipins, heldur flest til
viðbótar, nema vistir. Við sjáum
þó af kaupunum, hvað Englend-
ingar hafa notað til veiðanna á
þessum tíma. Reikningurinn er
ritaður á Old English og það hefur
staðið fyrir kunnáttumönnum •
þeirri tungu að skilja allt, sem þar
er tilgreint. Og segir næst af
þessum reikningi, sem er um
margt fróðlegur.
Tilkynning til kaupenda
Ægis
Gíróseðlar fyrir áskriftargjaldi hafa verið
sendir út. Vinsamlegast greiðið þá sem
^rst' Fiskifélag íslands.
FRIOGAS KÆLIMIÐLAR
R-12, R-22, R-502
OG MARGAR FLEIRI TEGUNDIR
KÆLIMIÐLA
KÆUTÆKNIÍ
SÚÐARVOGI 20 - 104 REYKJAVÍK - SÍMAR 91-84580 - 30031
682 - ÆGIR