Ægir - 01.11.1987, Síða 14
630
ÆGIR
orðið og getur hafnað vörunni á
hvaða forsendum sem honum
þóknast.
Á nýafstaðinni ráðstefnu á
vegum Rannsóknaráðs ríkisins í
tilefni 50 ára afmælis Atvinnu-
deildar Háskóla íslands var
fjallað um sjávarútveg undir yfir-
skriftinni „Frá sjávarútvegi til sjáv-
arbúskapar". Þótt þýðing
fiskeldis vaxi með hverju ári er
óralangt frá því að fiskeldi jafnist
á við fiskveiðar á íslandsmiðum.
Fiskimiðin kringum landið eru
okkar gjöfulasta fiskeldisstöð.
Skynsamleg veiðistjórnun sem
tryggir að nytjafiskar fái að vaxa í
hagkvæma stærð er okkar arð-
samasta fiskeldi. Hitter umhugs-
unarefni, hvaða áhrif aukið fram-
boð eldisfisks hefur á samkeppnis-
stöðu sjávarafurða á heimsmark-
aði. Markaðsverð á ræktuðum
fiski hefur verið lægra en verð á
fiski sem veiddur er með hefð-
bundnum hætti. Við þurfum ætíð
að fylgjast vel með þróuninni og
nýta okkur þá miklu sérstöðu sem
við höfum til að selja ómengaða
gæðavöru.
Góður árangur á nýafstaðinni
sjávarútvegssýningu er dæmi um
aðra vaxandi hliðargrein viðsjáv-
arútveg, sem er útflutningur á
búnaði og þekkingu. Er áformað
að sýning sem þessí verði haldin
hér reglulega á þriggja ára fresti.
Þessi árangur sýnir Ijóslega að
starfsemi tengd sjávarútvegi á
mesta framtíð fyrir sér hér á landi
og getur orðið stærri þáttur
atvinnulífsins.
Lokaorð
Sjávarútvegurinn hefur skilað
almenningi miklum tekjuauka á
undanförnum árum. Til þess að
verða fær um það hefur greinin
þurft að ganga í gegnum miklar
breytingar. Eins og oft áður eru
gerðar miklar kröfur til þessarar
undirstöðu þjóðfélagsins. Kröfu-
gerðin má hins vegar ekki verða
svomikil aðstoðirnarbresti. Fisk-
vinnslan býr nú við taprekstur
sem sýnir best að of langt hefur
verið gengið. Við verðum því að
ætlast til að kröfum verði stillt í
hóf og sjávarútvegurinn fái
starfsfrið.
Að undanförnu hefur orðið
mikil umræða um fiskveiðistjórn-
unina. Það er mjög eðlilegt að
svo sé, enda miklir hagsmunir í
húfi. Margt er sagt í hita leiksins
og ýmsum finnst að hallað sé
réttu máli. Sem sjávarútvegsráð-
herra má ég að sjálfsögðu búa við
það að hlusta á alls konarfullyrð-
ingar. Svo dæmi séu nefnd er því
slegið fram að ég berjist fyrir því
að smábátaútgerð verði lögð
niður, hafi ávallt verið á móti
frystitogurum, hafi heimilað að
setja upp rækjuvinnslu á Suður-
nesjum á kostnað Vestfirðinga,
haldi sérstaklega með norður-
svæði og breyti línum að eigin
geðþótta til að hygla heimabyggð,
vilji leggja niður útgerð á höfuð-
borgarsvæðinu, brjóti lög á skel-
fiskframleiðendum, sé hallur
undir sjónarmið útgerðarmanna
og sjómanna og svo mætti lengi
telja. Með þessu mega menn ekki
skilja mig svo að ég sé að kvarta
undan því að þessi mál séu rædd í
einlægni og hreinskilni. Það er
mikilvægara en allt annað og þótt
talað sé út og suður um hin ýmsu
mál, þá verður að sjálfsögðu að
þola það. Það er eðli stjórnmál-
anna að sett sé fram óvægin gagn-
rýni, en þeir sem standa utan
þeirra ættu ef til vill á stundum að
líta í eigin barm og spyrja sjálfa
sig, hvernig verði best haldið á
hinum ýmsu málum, þannig að
almannahagur og jafnræði sé
tryggt.
Það leysirekki þann vanda sem
við stöndum frammi fyrir, að gera
þeim aðilum upp skoðanir, sem
leggja sig fram um að tryggja
heildarhagsmuni í þessu erfiða
máli. Sannleikurinn er sá, að
11/87
margir þeirra sem stunda útgerð
og fiskvinnslu hafa farið ógæú'
lega. Þeir geta ekki ætlasttil þe8S
að ógætni þeirra sé borin upp' a,
meiri veiði eða gengið út frá þvl
að hún komi um of niður á þeim<
sem fyrir voru í greininni. Þe'r
sem hafa bæst við í smábátaflok
inn taka veiðimöguleika frá þe,rn
sem fyrir voru. Þeir sem lia a
verið að fjárfesta í rækjuveiðum
og rækjuvinnslu gera mögulei 3
þeirra sem fyrir eru þrengri og
þannig mætti lengi telja. Margif
hverjir sjá ekki fram úr þessun1
erfiðleikum og kenna þá fiskvei ^
stjórnuninni oft um. Þrátt ty
þau vandkvæði sem óhjákvaemi
lega fylgja lausn þessara
mála/
eru ekki aðrar raunhæfar hug
myndir í sjónmáli en þær se
frumvarpið, sem hér IÍ88U
frammi, byggir á. Þar eru
hins
vegar mörg álitamál og öll |e'^
sögn í því sambandi er mikilv3e.^
og það er nauðsynlegt Yr
Alþingi að fá sem gleggstar upP,
lýsingar um skoðanir aði a
greininni.
Fiskiþing hefur ávallt ver
mikilvægur vettvangur 5' ^
skoðanaskipta og ég vænti pe -
að á þinginu verði hreinskip
umræður urn stöðu má a
héðan verði afgreiddar
ályktanir um það sem fram e
komið. j
Ég óska Fiskiþingi allra hei
störfum og þakka gott sams
við Fiskifélag íslands á un
förnum árum.