Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1987, Blaðsíða 23

Ægir - 01.11.1987, Blaðsíða 23
'1/87 ÆGIR 639 höfundur við starfi hans sem for- stöðumaður FiskideiIdar og síðar sem forstjóri Hafrannsókna- stofnunar árið 1965. Að lokinni síðari heimsstyrjöld hljóp mikil gróska í íslenskar haf- fannsóknir. Fóru margirtil náms í þessum fræðum, aðallega á Norðurlöndum, á Bretlands- eyjum og í Vestur-Þýskalandi og fékk stofnunin á þann hátt mun alþjóðlegra yfirbragð en tilsvar- andi stofnanir í nágrannalöndun- um. Tókst þannig að nýta sér- fræðiþekkingu hinna einstöku háskóla og smátt og smátt náði rannsóknastarfsemin yfir flestallar greinar hafrannsókna, en fyrst og fremst var hugað að hagnýtum árangri varðandi veiðarnar og eins ráðgjöf til stjórnvalda varð- andi skynsamlegasta nýtingu 'slenskra nytjastofna. Smátt og smátt jókst þekking okkar varðandi áhrif umhverfis- 'ns á hegðun og útbreiðslu ein- stakra tegunda og ekki síður áhrif veiðanna á þær. Árið 1947 voru hafnar kerfis- bundnar sjórannsóknir á íslands- miðum og fylgst náið með haf- straumum, hitastigi og seltu auk athugana á uppleystum nær- ingarefnum sjávar. Þessar niður- stöður voru síðan tengdar fiski- göngum ogýmsum líffræðilegum atriðum, svo sem vaxtarhraða, kynþroska o.fl. Á þennan hátt tókst t.d. að skýra ýmis atriði varðandi göngur síldar úti af Norður- og Austurlandi. Rannsóknirá plöntusvifi hófust nokkru síðar og gáfu skýra mynd af framleiðslugetu einstakra haf- svæða umhverfis landið og var reynt að tengja þær við heildar- framleiðslu íslenska hafsvæðis- ins. Athuganir á dýrasvifi voru í tengslum við síldarrannsóknirn- ar, en náið samhengi fannst á milli mergðar af rauðátu og síld- argangna. Skýrðu þessar rann- sóknir ýmislegt varðandi hegðun síldarinnar. Á áttunda áratugnum voru hafnar rannsóknir á jarðfræði landgrunnsins og beindust þær þegar í upphafi að hagnýtum verkefnum. Teknar voru upp kerfisbundnar rannsóknir á rækju, humri, hörpudiski og fleiri tegundum hryggleysingja og í byrjun sjö- unda áratugarins voru farnir leið- angrar til leitar að nýjum rækju- miðum, sem skiluðu umtals- verðum árangri. Á sama hátt fundust mörg ný hörpudiskamið. Árið 1953 var sett Asdictæki til síldarleitar um borð í varðskipið Ægi og jafnframt sköpuð aðstaða til fiskirannsókna um borð í skip- inu ogáriðeftir hófst kerfisbundin síldarleit þótt smá væri í sniðum fyrstu árin. Sumarið 1955 voru gerðar síld- veiðitilraunir í sambandi við leit Ægis og var það upphafið að hinni miklu tæknibyltingu í veið- unum. Árið áður höfðu frumstæð „asdictæki" verið sett í fimm báta. Veiðiskipin fóru nú sjálf að leita síldarinnar og að kasta á torfur sem ekki óðu. Eftir að kraft- blökkin kom til sögunnar varfarið að kasta nótinni beint frá skipinu og var þeirri tækniþróun lokið í kringum 1960. Árin 1952-56 byggðist síldar- leitin og síldarrannsóknirnar mest á kerfisbundinni yfirferð um allt síldveiðisvæðið til þess að fá sem besta heildarmynd af hugsan- legum veiðimöguleikum. Frá árinu 1957 og þar til yfir lauk tólf árum síðar varð síldarleitin æ þýðingarmeiri fyrir veiðiflotann og auk Ægis voru venjulega tvö önnur skip sem önnuðust leitina. Ekki leikur vafi á því að pen- ingum þeim sem veitt var til leit- arinnar var vel varið, en erfitt að meta árangurinn til fjár. Þó má nefna að veiðin í júní á árunum 1957-67 byggðistað miklu leyti á athugunum rannsóknaskipanna en heildarsíldveiðin í júní á þessu tímabili nam alls um 530 þús. tonnum. Eins var veiðin á vetrar- stöðvum síldarinnar úti af Suð- austurlandi að miklu leyti árangur síldarleitarinnar. Á árunum 1955-62 voru farnir margir leiðangrar til þess að leita að nýjum fiskimiðum og fundust þá m.a. Jónsmiðog Fylkismiðvið Austur-Grænland og urðu mikill búhnykkur fyrir togaraútgerðina,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.