Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1987, Blaðsíða 22

Ægir - 01.11.1987, Blaðsíða 22
638 ÆGIR bundnar fiskirannsóknir árið 1931 og var Árni Friðriksson fiskifræðingur félagsins frá 1. janúar sama ár. Meginverkefni Árna voru rannsóknir á þorski og síld. í þorskrannsóknunum hélt hann áfram þeim rannsóknum er danski fiskifræðingurinn Vedel Taaning hóf árið 1928 og beind- ust þær einkum að athugunum á missterkum árgöngum í aflanum og áhrifum þeirra á aflabrögð næstu ára. Síldarrannsóknir hans snerust fljótlega að samhenginu á milli síldar og átumergðar. Leit hans að hrygningarstöðvum ís- lensku vorgotssíldarinnar við Suðvesturland árin 1935 og 1936 báru engan árangur og þá fæddist með honum sú hugmynd að meg- inhluti hinnar svokölluðu Norð- urlandssíldar væri af norskum uppruna og hrygndi við Noreg. Færði hann að því mörg rök í bók sinni um Norðurlandssíldina sem út kom árið 1944. Ekki voru þó allir starfsfélagar hans trúaðir á þessa tilgátu, en að stríðinu loknu hófst Árni handa um víðtækar síldarmerkingar bæði við ísland og Noreg í samvinnu við norska fiskifræðinga og endurheimtur næstu árin sönnuðu kenningu Árna svo að ekki varð um villst. Síðari hluta fjórða áratugarins lagði Árni æ meiri áherslu á að rannsaka áhrif væntanlegrar lok- unar Faxaflóa, en hugmyndin um að friða flóann hafði þegar komið fram árið 1867. Aðeins vantaði herslumuninn á að tækist að ganga frá málinu áður en stríðið braust út 1939. Að því loknu var málið tekið fyrir að nýju hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu, sem lagði eindregið til að Faxaflóa yrði lokað fyrir öllum togveiðum í tilraunaskyni í ákveðinn ára- fjölda, en þá skarst breska ríkis- stjórnin úr leik og friðunarmál íslendinga tóku aðra stefnu, svo sem kunnugt er. Síldveiðin brást á miðju sumri 1935 og jók það mjög áhuga tog- aramanna á karfaveiðum. Árin 1936 og 1937 voru því farnir nokkrir leiðangrar í þessu skyni á varðskipinu Þór undir stjórn þeirra Árna Friðrikssonar og Finns Guðmundssonar og tókst að fá allgóða mynd af útbreiðslu karfans við ísland. Haustið 1937 tók Atvinnudeild háskólans til starfa og var Árni skipaður forstöðumaður Fiski- 11/87 deildar. Voru starfsmenn sex að tölu, þar af tveir sérfræðingar, aldarfjórðungi síðar var starfsliðið 23 menn og af þeim h sérfræðingar. í byrjun árs 198/ voru sérfræðingar 42, en starfs- fólk alls 108 og af þeim voru 31 í áhöfnum þriggja rannsóknaskip3 stofnunarinnar. Árið 1954 gerðist Árni fram- kvæmdastjóri Alþjóðahafrann- sóknaráðsins og tók þá greinar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.