Ægir - 01.11.1987, Page 34
650
ÆGIR
11/87
Bretlandi eru einnig í undirbún-
ingi reglur til að koma skikkan á
íshúðun rækju sem mjög er mis-
notuð þar í landi.
Náin tengsl við markaði okkar
verða þannig mikilvægari með
hverju árinu sem líður, bæði
vegna þess að framleiðsla og sala
verður meira nákvæmniverk og
krefst því meiri tengsla, en ekki
síður vegna þess, að persónuleg
samskipti og kynni uppræta öðru
fremur misskilning og vantraust.
Sjón er líka sögu ríkari, ef við
viljum bera saman okkar fisk og
annarra.
Þróun fiskvinnslu
Til þróunar í fiskvinnslu. —
Margir hafa gerst spámenn og
hugsað í byltingum. Mig langar
fyrst að velta fyrir mér breytingum
á vinnslu fisks og sölu hjá
íslenskum fyrirtækjum erlendis.
Ég held að sala muni einkum auk-
ast á fiskafurðum þar sem fisk-
einkennin fá að njóta sín, slíkt er
bæði í takt við matreiðslubreyt-
ingar og hollustuhætti þeirra sem
flokkast undir sælkera og efni
hafa á að veita sér vel í mat. Þetta
þýðir meiri sérhæfingu í vinnslu
hérlendis og auknar kröfur til
hráefnis. Slíkan fisk má framleiða
í stykkjapakkningum hér heima
eða sem góðar blokkir og þá
skornar í stykki erlendis. Kaup-
endur verða aðallega veitingahús
og verslanakeðjur. Fiskurinn
getur einnig orðið hluti af sam-
settum máltíðum sem þróaðar
eru í samvinnu við fyrirtæki er
reynslu hafa af slíku og undir
þeirra vörumerkjum. Ég tel að
íslensku fyrirtækin hér heima eigi
að einbeita sér að þróunarvinnu á
fiskinum sjálfum. Rasp-oghveiti-
húðaðir stautar munu vafalaust
seljast áfram en í auknum mæli
hygg ég, að í þá verði notaður
annar fiskur en þorskur. í Evrópu
og Bandaríkjunum er talinn vera
„Margir hafa gerst spámenn
og hugsað í byltingum. Mig
langar fyrst að velta fyrir mér
breytingum á vinnslu fisks
og sölu hjá íslenskum fyrir-
tækjum erlendis. Ég held að
sala muni einkum aukast á
fiskafurðum þar sem fisk-
einkennin fá að njóta sín,
slíkt er bæði í takt við mat-
reiðslubreytingar og holl-
ustuhætti þeirra sem flokkast
undir sælkera og efni hafa á
að veita sér vel í mat".
vaxandi áhugi á að kaupa fisk
„ferskan" — þ.e. ófrosinn. Gildir
þar hvort tveggja að oft er lítill
tími ætlaður til matreiðslu en ekki
síður held ég þetta vera sálfræði-
legan lið í meðvitund fólks fyrir
„náttúrulegum" matvælum frem-
uren „iðnaðarvöru". Athuga þarf
vel, hvernig hægt er að selja
þíddan fisk á þennan hátt, t.d.
fiskflök sem seld eru fryst héðan
og þídd hjá fyrirtækjum okkar er-
lendis. Sums staðar kann að vera
erfitt að komast framhjá því að
orðið „fresh" samræmist ekki
þíddu en það er sérgrein heilla
deilda stórfyrirtækja að koma
orðum að hlutunum. Ef rétt er að
staðið fylgir ekki gæðarýrnun
þessari meðferð og framfarir eru
að verða í uppþíðingaraðferðum.
Ég held einnig, að í framtíðinni
verði flakapakkningar sendar
ófrosnar í loftskiptum plastum-
búðum. Rannsóknir hafa verið
miklar á þessu sviði og Ijóst að
mjög góð kæling á fiski ásamt
pökkun í blöndu af C02, N2 og
02 eykur verulega geymsluþol
bæði á mögrum fiski og feitum.
Þannig eykst geymsluþol á
þorskflökum við 0°C um viku og
um 3 daga við 2°C. Þessi aukning
getur orðið okkur gagnleg í flutn-
ingi og kæliborðum verslana en
ég held ekki að við eigum að
treysta neytendum fyrir neinu
geymsluþoli. Ég verð eiginlega
að viðurkenna að ég treysti fáum
fyrir matreiðslu á fiski og held að
vankunnátta á því sviði sé skýr-
ingin á því hvers vegna fiskur er
svo vinsæll í neyslu utan heimila-
Nú er mjög rætt um geislun
matvæla til að lengja geymsluþol
þeirra og fiskur þar til nefndur.
Verulegur skriður virðist vera a
því að Evrópulönd og Bandaríkin
viðurkenni geislun til rotvarnar.
Að mörgu leyti má líkja geislun
við örbylgjuhitun því að mat-
vælin verða fyrir rafsegulbylgju'11
í báðum tilvikum en verða alls
ekki geislavirk. Ég held ekki að
við eigum að hugsa til þess að
taka upp þessa aðferð í bráð. Þa
mun taka langan tíma enn a
sannfæra neytendur um að ao-
ferðin sé hættulaus og þeir munu
frekar sækjast eftir vöru sem er
auglýst sem ógeisluð. Hitt er þo
augljósara, að aðferð sem reynist
svo vel til rotvarnar er opin fyr'r
misnotkun ekki síst af því a
engin leið er að meta hvort varan
var geisluð skv. góðum trara
leiðsluháttum eða marggeislu
Er þá hætt við að varan sé íraun
orðin efnislega skemmd þegar
hún er geisluð og meðferðin þa
hugsuð sem n.k. endurlífgun-
Slíkt tekst að sjálfsögðu ekki og
gengurekki ífólk sem ætlasttil a
njóta ferskleika og bragðgæða en
ekki bara þeirrar vissu að varan se
ekki lífshættuleg. .
Ég sé fram á það, að sölutynj
tæki okkar erlendis verði 'JO
þjóðlegri í viðskiptum héðan J ra
og muni kaupa fisk frá öl u
löndum Evrópu og Ameríku sem
fisk hafa að bjóða og samræmjs
gæðakröfum fyrirtækjanna. F|S
skortur frá íslandi ýtir veru eg
undir þessa þróun, sem nie,
finnst eðlileg og tímanna ta n
viðskiptum. Vafalaust þurfa fyM
tækin að hafa hönd í bagga me