Ægir - 01.11.1987, Qupperneq 42
658
ÆGIR
11/87
Fiskvinnslulína fyrir bolfiskflök er að mestu s.b.-
megin á vinnsluþilfari. Úr blóðgunarkerum er
fiskinum hleypt inn á láréttfæribönd, niður við gólf,
sem flytja síðan að jötum við slægingar- og hausun-
arvélar. Eftir slægingu og hausun flyst fiskurinn með
færiböndum að flökunarvél, því næsttekur roðfletti-
vél við og síðan fara flökin í snyrtingu, pökkun og
vigtun. Pakkarnir eru síðan frystir í fjórum láréttum
plötufrystum, sem eru í sérstöku frystirými fremst á
vinnsluþilfari.
Fiskvinnslulína fyrir karfaflök er framan við og til
hliðarvið bolfisklínuna. Karfinn erfluttur með sama
færibandakerfi og áður er lýst, að þvottavél og síðan
að hausunar- og flökunarvél. Því næst fara flökin í
roðflettivél og þá í snyrtingu, pökkun og vigtun, og
frystingu í láréttum plötufrystitækjum. Hægt er að
láta karfann fara í gegnum afhreistrara áður en hann
fer að flökunarvélinni.
Fiskvinnslulína fyrir heilfrystan fisk (karfi, grálúða)
er b.b.-megin á vinnsluþilfari. Eftir slægingu og
hausun í sérstakri hausunarvél flyst fiskurinn með
færibandi að flokkunaraðstöðu og yfir í þvottavél og
þaðan með færiböndum að pökkunarborði og síðan
að plötufrystum.
Fiskvinnslulína fyrir gulllax er b.b.-megin á
vinnsluþilfari, og samanstendur af tveimur haus-
unar- ogflökunarvélum og marningsvél ogfrystingu
í plötufrystum.
I skipinu eru eftirtalin fiskvinnslutæki: Tvær
Baader 161 slægingar- og hausunarvélar fyrir
bolfisk; ein Baader 189 flökunarvél fyrir bolfisk; ein
Baader 51 roðflettivél; ein Baader 150 karfahaus-
unar- og flökunarvél; einn GFM afhreistrari; ein
hausunarvél frá Oddgeir og Ási fyrir karfa og grá-
lúðu; tvær Baader 33 hausunar- og flökunarvélar
fyrir gulllax; ein Baader 697 marningsvél; þrjár
Strapex (hálfsjálfvirkar) bindivélar; þrjár Marel
tölvuvogir. Færibönd til flutnings eru vökvaknum
frá JAM. Þá má nefna pönnurekka á spori.
Búnaður til frystingar er frá Sabroe og er um eftir-
talinn búnað að ræða: Fjórir láréttir 14 stöðva Jack-
stone Froster plötufrystar fyrir flök, afköst 16 tonn a
sólarhring hver, og einn lóðréttur 20 stöðva Jack-
stone Froster plötufrystir, afköst 6.4 tonn á sólar-
hring. Þá er í skipinu einn Sabroe lausfrystir, afköst
10 tonn á sólarhring.
Fiskúrgangur flyst frá fiskvinnsluvélum um rör að
kvörn (hakkavél). Kvörnin er frá Jara, af gerð Zell-
enrad PumpZ2RQS-195/15-XZ2, ogfrá henniferúr-
gangurinn í meltugeyma. Hringrásardælu- og sýru-
skömmtunarbúnaður fyrir meltugeyma er einnig fra
Jara.
Loft og síður vinnslurýmis eru einangraðar með
glerull og klæddar með vatnsþéttum krossviði
(plasthúðuðum), nema neðstu 40 cm á síðum eru
með stálklæðningu.
Fiskilestar:
Rými frystilesta er um 702 m3, skipt í fremri les
(235 m3) og aftari lest (467 m3), og eru lestar sérsta
lega búnar fyrir geymslu á frystum afurðum
kössum. Síður og þil lesta eru einangruð me
polyurethan (lágmark 200 mm) og loft með 300 mm
glerull og klætt með vatnsþéttum krossviði (plast
húðuðum). Gólf lesta eru einangruð með 150 mm
plasti og 100 mm steypulag ofan á. Kælileiðslui '
lofti lesta geta haldið s-30°C hitastigi í lestum. Les
unum er skipt í hólf með tréborðauppstillingu.
Flutningur frá vinnsluþilfari í lestar fer fram me
sérstakri lyftu, innbyggð í lyftuhús á þili milli lesta-
Myndin til vinstri sýnir pökkunaraðstöðu fyrir flök og myndin til hægri plötufrysta og pönnurekka á spori. Ljósmyndir.
deild/ER.
Tækni'