Ægir - 01.01.1991, Blaðsíða 48
40
ÆGIR
1/91
9. gr.
Stærð hvers möskva skal vera
breidd mælistikunnar þar sem hún
stöðvast þegar henni er beitt sbr.
7. gr.
10. gr.
Möskvastærð netsins, sem mælt
er skv. 7.-9. gr. skal vera meðaltal
mælinga einstakra möskva gefið
upp rneð 0.1 mm nákvæmni.
Skekkjumörk við mælingu
möskva skv. þessari reglugerð
skulu vera 3%.
11. gr.
Eftirlitsmaður skal rnæla eina
röð af 20 möskvum sem valdir eru
skv. 8. gr. og skal hann stinga
mælinum inn í möskvann með
handafli án þess að nota lóð eða
aflmæli. Síðan skal möskva-
stærðin reiknuð skv. 10. gr.
Sýni útreikningur á rnöskva-
stærðinni að möskvastærð sé ekki
í samræmi við gildandi reglur,
skal velja tvær raðir af 20
möskvum til viðbótar skv. 8. gr.
og þær mældar. Þá skal reikna
möskvastærð aftur skv. 10. gr. og
taka með í útreikninginn þá 60
möskva sem þegar hafa verið
mældir og skal þessi útreikningur
skera úr um möskvastærð netsins.
Mótmæli skipstjórinn niður-
stöðu mælingar sem fengin er skv.
2. mgr., skal netið mælt að nýju.
Við endurmælingu skal nota lóð
eða aflmæli festan við stikuna og
ræður eftirlitsmaður hvort notað
er. Lóðið skal festa við gatið á
mjórri enda stikunnar með króki.
Aflmælinn skal festa við efri enda
stikunnar.
Mæla skal þannig eina röð með
20 möskvum á ofangreindan hátt
og skal meðaltalið gilda sem
endanleg meðalmöskvastærð við-
komandi nets.
Við mælingu á vörpum, sem
hafa möskvastærðina 45 mm eða
minna skv. 4. og 5. gr. skal nota
19.61 newtona afl (sem samsvarar
2ja kg þyngd), en á aðrar vörpur
skal nota 49.03 newtona afl (sem
samsvarar 5 kg þyngd).
12. gr.
Við veiðar er óheimilt að nota
nokkurn þann útbúnað sem
þrengir, herpir eða lokar á nokk-
urn hátt möskvum þeint sem getið
er um í 1 .—2. gr. reglugerðar þess-
arar. Þó er heimilt að:
a. Festa undir allt að 25 öftustu
metra botnvörpu net með
söinu möskvastærð og er í pok-
anum í því skyni að draga úr
sliti. Slitvara þessa má t'esta við
pokann að framan og til hliðar
og einnig er heimilt að t'esta
slitvarana við styrktarnet et'ra
byrðis að at'tan sbr. c. lið þess-
arar greinar. Á óskiptum poka
(sekk) er ennfremur heimilt, að
öt'tustu tveir metrar pokans séu
þrengdir á leisum.
b. Festa uncíjr slitvara þá er getið
er í a. lið nautshúðir, mottur úr
gerviefnum eða aðra sambæri-
lega slitvara í því skyni að auka
enn núningsþol pokans.
c. Festa styrktarnet úr sarna efni
og varpan er gerð úr við allt að
18 öt'tustu metra efra byrðis
botnvörpu og et'ra og neðra
byrðis t'iotvörpu. Möskvastærð
styrktarnetsins skal vera rúm-
lega tvöfalt stærri en möskva-
stærð vörpunnar þar sem það
er fest við. Heimilt er að t’esta
styrktarnet þetta við pokann að
framan, til hliðar og að attan,
sbr. b. lið þessarar greinar.
d. Nota styrktargjarðir utan um
pokann á allt að 25 öftustu
metra botnvörpu og t'lotvörpu.
Bil á milli gjarða skal vera
minnst 1.8 m en heimilt er að
festa öftustu gjörðina nær koll-
línunni. Lengd gjarða skal vera
minnst 45% af strengdri lengd
netsins á þeim stað sem gjörðin
er.
e. Festa innan á neðra byrði botn-
vörpu húð eða mottu til að
auka núningsþol pokans vegna
grjóts, sem berst í pokann.
Stærð þessara hlífa má mest
vera 4 nr alls í hverri botn-
vörpu.
13. gr.
Við veiðar með botnvörpum og
flotvörpum samkvæmt 4.-5. gr. er
heimilt að nota hlífðarpoka utan
um pokann sjálfan. Lágmarks-
möskvastærð slíks hlífðarpoka
skal vera 80 mm.
Þegar notaður er hIífðarpoki
sbr. 1. mgr. við rækjuveiðar utan
grunnlínu, sbr. reglugerð nr. 299/
1975 um tískveiði landhelgi
íslands, er heimilt að binda t'yrir
hlít'ðarpokann að aftan. Annars er
óheimilt að nota net eða hvaðeina
til þéttingar poka að at'tan.
Heimilt er við veiðar með botn-
vörpum samkvæmt 3.-5. gr. að
íesta undir 8 öítustu metra vörp-
unnar nautshúðir eða mottur úr
gerviet'num í því skyni að auka
núningsþol pokans.
14. gr.
Eigi ná ákvæði þessarar reglu-
gerðar til t’iskveiða í þágu vísinda-
legra rannsókna. Enntremur er
ráðuneytinu heimilt að veita sér-
stök tímabundin veiðileyfi í til-
raunaskyni þar sem notaðar eru
vörpur með annarri möskvastærð
en fram kemur í reglugerð þessari.
15. gr.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar
þessarar varða refsingu samkvæmt
ákvæðum laga nr. 81 31. maí
1976, um veiðar í fiskveiðiland-
helgi íslands og laga nr. 34, 17.
maí 1976, um veiðar íslenskra
skipa utan fiskveiöi landhelgi
íslands. Um upptöku afla fer sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 32 19.
maí 1976, um upptöku ólöglegs
sjávarafla.
16. gr.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 81 31.
maí 1976, um veiðar í fiskveiði-
landhelgi íslands og laga nr. 34,