Ægir - 01.01.1991, Blaðsíða 42
34
ÆGIR
1/91
HAF- OG FISKIRANNSÓKNIR
Skipaáætlun Hafrannsóknastofnunar 1991
Á síðastliðnu ári voru gerðar
viðamiklar endurbætur á rann-
sóknaskipinu Árna Friðrikssyni
þannig að þar er nú mun betri að-
staða til margvíslegra rannsókna
en áður var. Þá var innréttuð rann-
sóknastofa og lagfærðar íbúðir
skipverja á r.s. Dröfn. Rannsókna-
skipin eru því þetur þúin til að
gegna hlutverki sínu en verið
hefur á undanförnum árum.
Vegna mikillar óvissu um ástand
loðnustofnsins verður lögð mikil
áhersla á loðnurannsóknir árið
1991. Skipaáætlun ber þess
greinileg merki. Þannig verða r.s.
Bjarni Sæmundsson og r.s. Árni
Friðriksson við loðnurannsóknir í
samtals 132 daga og eru þá ekki
meðtaldir aukaleiðangrar sem
væntanlega verða farnir ef illa
gengur að mæla stærð loðnu-
stofnsins. Stofnmælingu botnfiska
á 5 leigðum togurum verður fram-
haldið í 7. sinn en stoínmæling
rækju fer fram á rannsókna-
skipunum Árna Friðrikssyni og
Dröfn og er þetta í fjórða skiptið
sem slíkar mælingar eru gerðar. í
júní verður Bjarni Sæmundsson
við rannsóknir á úthafskarfa djúpt
suðvestur af landinu og verða þá
gerðar tilraunir tii að mæla stærð
karfastofnsins með bergmálsað-
ferð. A.m.k. þrír jarðfræði- og
málmleitarleiðangrar verða farnir
á árinu. Vistfræðirannsóknum á
hrygningarslóð suðvestanlands
sem hófust á s.l. ári verður fram
haldið svo og hefðbundnum rann-
sóknum á ástandi sjávar seni
gerðar eru árst'jórðungslega.
Að öðru leiti ber skipaáætlunin
þess merki eins og mörg undan-
farin ár að úthald skipanna er
miðað við 9 mánuði skv.
ákvörðun fjárveitingavaldsins.
Raunar er alls óvíst hvort framlög
á fjárlögum þessa árs duga til þess
að halda skipunum úti svo lengi.
Jakob Jakobsson
R.S. Árni Friðriksson
Leid nr. Dags. Verkefni Athafnasvæði Verkeínisnúmer
1. 2.1.-23.1 Loðnurannsóknir A og SA 23.02, 28.15
2. 28.1.-14.2. Loðnu- og síldar- 23.02
rannsóknir S og SA 23.03
3. 3.4.-15.4. Mangangrýti á Reykjaneshrygg SV 11.18
4. 18.4.-30.4. Útbreiðsla og magn silikat- N 11.02
og mangansambanda
5. 7.5.-10.5. Kvörðun bergmálstækja Flvalfjörður 23.05
6. 21.5.-1.6. Uppstreymi í ísafjarðardjúpi V og N 11.14
og langtíma umhverfisrannsóknir 11.15
á íslandsmiðum 11.19
7. 3.6.-10.6. Vistfræðirannsóknir SV-lands SV 16.03
15.05
8. 1.7.-15.7 Stofnmæling rækju N 22.07
Rækjuleit 24.06
9. 18.7-1.8. Stofnmæling rækju N 22.07
Rækjuleit 24.06
10. 7.8.-3.9. Fiskungviði Umhverfis 16.01,22.02
Ástand sjávar landið 23.04, 15.05
Dýrasvif 13.02, 28.15
11. 30.9-18.10. Stofnmæling loðnu Vog N 23.01
12. 23.10-5.11. Stofnmæling loðnu V, N og A 23.01
13. 25.1 1 .-20.1 2 Stofnmæling síldar VogS 23.03