Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 4

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 4
SKATTA- OG VINNURÉTTUR í þessu hefti er haldið áfram að birta fyrirlestrana, sem fluttir voru á nám- skeiði Lögfræðingafélagsins um vinnurétt á s.l. vori. í síðasta árgangi voru prentaðir fyrirlestrar frá skattaréttarnámskeiði félagsins 1973. Þegar þessi tvö námskeiðsefni voru valin, var fyrst og fremst hugsað um áhugaverð lagamál. sem fræðslu skorti um. Eftir á er vert að veita því athygli, að báðir efnisfloKkarnir mega kallast á mörkum starfssviðs lögfræðinga. Um skatta- mál fjalla aðrir meira, og þau vinnumál vekja mesta athygli, sem eru stjórn- málalegs eðlis, — kjarasamningar og verkföll. Stefnan í skatta- og launamálum er að sjálfsögðu pólitískt mál, og meira að segia meðal hinna mikilvægustu. Lögfræðin segir ekki til um þessa stefnu. Hitt er jafnvíst, að stefnumál verða framkvæmd á grundvelli lagareglna. Efnis- reglur um skatta hafa verið í lögum um aldaraðir, og nú er að aukast skiln- ingur á bví, að framkvæmd skattlagningar þurfi að bæta frá réttaröryggis- sjónarmiðum. Til eru æfagamlar lagareglur um vinnumál hér á landi. Þær reyndust misjafnlega og oft illa, enda voru þær óvinsælar, svo sem sagt er frá í fyrirlestri Gunnars Sæmundssonar í síðasta hefti tímaritsins. Með lögum nr 80/1938 var reynt að koma nokkru sniði á kjarasamninga og framkvæmd verkfalla. Það var jafnvel stofnaður Félagsdómur, sem menn munu flestir sammála um, að hafi rækt hlutverk sitt vel. Ekki tjóir að loka augunum fyrir því, að enn má búast við, að lagareglur um málefni vinnumarkaðarins séu ekki ætíð virtar. Gæti frekari reglusetning því sýnst lítt árennileg. Sennilega mætti þó ná samkomulagi „aðila vinnu- markaðarins" um ýmis einstök atriði og auka þar með gengi lögbundinnar þjóðfélagsstarfsemi á þessu sviði. í jafnhlutlausu riti og Tímariti lögfræðinga er ekki ástæða til að lýsa í leiðara skoðunum á þessu sviði í einstökum at- riðum. Hins vegar ætti að veita því athygli, að það væri fremur til hags en tjóns, ef gengi iagareglnanna á þessu sviði færi vaxandi. Þ. V. 130

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.