Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Qupperneq 6

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Qupperneq 6
sviði, svo fremi að um teljandi breytingar á eðli starfsins sé að ræða. Vinnuveitandi getur þannig t. d. ekki einhliða breytt starfssviði verk- stjóra og falið honum almenn verkamannastörf, þótt hann haldi verk- stjóralaunum. Enda þótt ekki sé um varanlega breytingu á starfinu að ræða, held- ur aðeins tiltekið afmarkað verk, gildir í rauninni sama meginreglan. Prentara verður ekki skipað að gera við prentvélina, ef hún bilar, og verkamanni verður ekki skipað að fara inn í störf iðnaðarmanna. Þrátt fyrir þessar meginreglur, er það oft svo, að skil milli verka eru mjög óljós. Meginþorri atvinnufyrirtækja á íslandi eru tiltölulega lítil, og verksvið hvers starfsmanns því ekki eins afmarkað eins og t. d. gerist í stærri fyrirtækjum erlendis. Þetta verður að hafa í huga, þegar metið er, hversu víðtækur réttur starfsmannsins er til að neita að vinna verk, sem hann telur að falli utan við sitt starfssvið. Ussing telur í bók sinni„Enkelte kontrakter“ (45. gr., II C), að önnur sjónar- mið komi til, ef hætta er á að vinnuveitandinn bíði tjón, ekki síst ef hið yfirvofandi tjón stafar af vanrækslu starfsmannsins. Annað er að sjálfsögðu upp á teningnum, þegar um er að ræða tjón vinnuveitanda vegna verkfalls. Um ríkisstarfsmenn gildir hins vegar sú regla, að skv. 33. gr. 1. nr. 38/1954 er starfsmanni skylt að hlíta breytingum lögum samkvæmt á störfum og verkahring frá því hann tók við starfi, enda hafi breyt- ingin ekki áhrif til skerðingar á launakjörum hans eða réttindum. Sama gildir um breytingar, er yfirmaður ákveður, en þeirri ákvörðun má skjóta til ráðherra. Gunnar Eydal hdl., starfsmaður BSRB, var kynntur lesendum tímaritsins í 4. hefti 1974, en þá birtist eftir hann greinin „Lögfræðiaðstoð án endurgjalds". Hér er birtur fyrirlestur, sem Gunnar flutti á námskeiði Lögfræðingafélags- ins um vinnurétt 18. maí s.l Fjallað er um skyldur starfsmanna varðandi verksvið, vinnu- stað, vinnutíma, yfirvinnu, aukastörf og veik- indi. Rætt er um hlýðnisskyldu starfsmanna og loks um réttindi til launa, orlofs og lífeyris- tryggingar. Aðrir fyrirlestrar frá námskeiðinu um vinnurétt verða væntanlega birtir í næstu heftum. 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.