Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Page 7

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Page 7
Um gæði verksins er erfitt að setja fram ákveðnar reglur, en starfs- maður skal vinna verk sitt miðað við það, sem venja er til í starfs- greininni, og eftir því sem hæfni hans, menntun og vinnuaðstaða gefur tilefni til. Ekki eru í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/' 1938 nein ákvæði um gæði verksins. Hins vegar er að finna mjög rúmt ákvæði um þetta efni í lögum nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, þar sem segir, að starfsmanni sé skylt að rækja starf sitt með alúð og samviskusemi í hvívetna, sbr. 28. gr. Vinnustaðurinn. Vinnustaðurinn skal vera á þeim stað, sem samið er um, eða sá staður, sem skv. eðli vinnunnar má telja eðlilegan. Spurning getur verið um það, hvort starfsmenn séu bundnir af ráðningarsamningi, ef vinnustaðurinn er fluttur án þess að búast hefði mátt við slíkum flutningi. Telja verður, að það gefi ekki starfsmönnum tilefni til að rifta ráðningarsamningum þótt fyrirtæki flytji í nýtt húsnæði í ná- grenninu, eða innan sama bæjar. Hins vegar gegnir öðru máli, ef um lengri flutning á vinnustöð er að ræða, eða flutning í annað sveitarfélag. Samkvæmt dönskum dómi, U 1956/868 var niðurstaðan sú, að starfsmaður þyrfti ekki að sætta sig við, að vinnustöð hans væri flutt til annars bæjar 9 km frá fyrri vinnustað. Vinnutíminn. Með lögum nr. 88/1971 var lögfest á Alþingi 40 stunda vinnuvika, en skv. 2. gr. þeirra laga skulu í viku hverri ekki vera fleiri en 40 dagvinnutímar, sem vinna ber á dagvinnutímabili á virkum dögum vikunnar, sem aðilar hafa komið sér saman um. Lög þessi segja hins vegar ekkert um, hvaða vinnuskyldu megi í reynd leggja á starfs- menn, en kunnara er en frá þurfi að segja, að um langt skeið hefur á Islandi tíðkast mjög mikil yfirvinna, og hafa yfirvinnutekjur verið mjög stór hluti af tekjum launþega. 1 5. kafla laga nr. 23/1952 um öryggisráðstafanir á vinnustöðum er að finna ákvæði um lágmarks hvíldartíma verkamanna o. fl. Sam- kvæmt 28. gr. skal vinnu þannig hagað, að sérhver verkamaður geti notið samfelldrar hvíldar frá vinnu sinni, sem sé eigi skemmri en 8 klst. á sólarhring. Þessi ákvæði ná þó ekki til allra verkamanna, þar sem gerð er undantekning, m. a. um þá, sem vinna að hvers konar björgunarstörfum, og þá, sem starfa að björgun hvers konar fram- leiðslu frá skemmdum. í framangreindum undantekningartilfellum 133

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.