Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 15

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 15
Iðgjöld af biðreikningi þessum verða ekki endurgreidd launþega nema til kaupa á réttindum í lífeyrissjóði. Heimilt er þó að endur- greiða iðgjald launþega til hans, þegar hann hefur náð 70 ára aldri, ef sýnt er, að inneign hans skapi honum engin réttindi til lífeyris af biðreikningi þessum eða með tilflutningi í aðra lífeyrissjóði. Síðan segir í úrskurðinum, að um réttindi vegna iðgjaldanna skuli gilda ákvæði reglugerðarfyrirmyndar lífeyrissjóðsnefndar Alþýðusambands Islands og Vinnuveitendasambands Islands frá 5. mars 1970. Af þessu er ljóst, að hér er aðeins um bráðabirgðalausn að ræða, sem gilda á, þar til starfsmaður fær aðild að lífeyrissjóði. Geta má þess, að nú stendur yfir endurskoðun á lögum nr. 29/1963 um Lífeyrissjóð starfs- manna rjkisins. 1 spjalli þessu hef ég reynt að koma inn á nokkur mikilvæg atriði, sem varða réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsmanna, og mætti þar auðvitað ýmsu við bæta. Að lokum vil ég þakka lögfræð- ingafélaginu fyrir það lofsverða framtak að gangast fyrir ráðstefnu þessari um vinnurétt með von um að ráðstefnan muni glæða áhuga íslenskra lögfræðinga á því sviði. HEIMILD ARIT: Arbejdsret eftir Jens Dagerb0l og Allan Rise. — Dansk Funktionærret eftir H. G. Carlsen. — Arbejdsret eftir Knud Illum. — Enkelte Kontrakter eftir H. Ussing. — Kollektiv Arbejdsret eftir Per Jakobsen. 141

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.