Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Síða 19

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Síða 19
Stjórnin kýs formann Vinnuveitendasambandsins á fyrsta fundi, eftir að hún hefur verið kjörin, svo og aðra embættismenn. Stjórnarmenn eru valdir úr sem flestum starfsgreinum innan Vinnuveitendasam- bandsins, þannig að sem flest sjónarmið eigi þar fulltrúa. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin (fulltrúaráðið) enn fremur sjö framkvæmdastjórnarmenn úr sínum hópi. Formaður sambandsins er sjálfkjörinn formaður framkvæmdastj órnar. Sjö menn úr stjórn- inni eru varamenn í framkvæmdastjórn. Tilnefnir hver aðalmaður í framkvæmdastjórn sinn varamann. Stjórn Vinnuveitendasambandsins, sem nú er skipuð 40 mönnum, er í raun alveg hliðstæð fulltrúaráðum í ýmsum öðrum samtökum. Framkvæmdastjórnin fer með málefni sambandsins á milli stjórnarfunda, að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið skrifstofu sambandsins slíkar framkvædir. 1 20. gr. laga sambandsins segir, að engir meðlimir, hvorki deildar- menn né beinir meðlimir, megi gera samninga við þá, sem hjá þeim vinna, né heldur stéttarfélag þeirra, nema framkvæmdastjóri hafi, að því er beina meðlimi snertir, eða deildarstjórnarformaður, að því er deildarmeðlimi snertir, áður samþykkt, að samningurinn yrði gjörð- ur. Enn fremur þarf skriflegt samþykki framkvæmdastjórnar til þess, að félagsmenn megi gera samninga, eða tilboð um samninga, við starfs- menn sína, sem innihalda: 1. Styttingu vinnutímans. 2. Launahækkun, þar með talin hækkun á borgun fyrir ákvæðisvinnu. 3. Ný lágmarkslaunaákvæði. 4. Frí, með eða án launa. 5. Greiðslur vegna slysa eða sjúkleika fram yfir það, sem lög mæla fyrir um. 6. Skyldur til að ráða aðeins verkamenn, sem eru meðlimir í verka- lýðsfélagi, eða aðeins fyrir milligöngu vinnumiðlunarskrifstofu verkalýðsfélaga. 7. Ákvæði, sem geta gert erfiða þátttöku meðlima í verksviptingu í samræmi við lög sambandsins. Enn fremur segir, að enginn félagsmaður megi semja við Alþýðu- samband íslands án milligöngu framkvæmdastjóra sambandsins. 1 B-lið 21. gr. sambandslaganna eru ákvæði um það, hvernig taka skuli ákvörðun um verksviptingu eða verkbann, og hvernig það skuli framkvæmt. Eru allar reglur um slíka ákvarðanatöku mjög strangar 145

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.