Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Qupperneq 20

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Qupperneq 20
og gera ráð fyrir bæði auknum meirihluta um ákvarðanatöku og að aukinn meirihluti þeirra, sem ákvörðun eiga að taka, sé mættur, sbr. 21. gr. B, 4. lið. Enn fremur segir, að enginn félagsmaður megi ráða til sín verkamenn, sem eru í verksviptingu eða verkfalli hjá öðrum félagsmönnum. Stjórnin getur ákveðið, að sama skuli gilda viðvíkj- andi verksviptingu eða verkfalli erlendis. Ef verkfall eða verksvipting verður hjá einhverjum meðlimi Vinnuveitendasambandsins, skal hlut- aðeigandi, ef hann telur ástæður til, eða framkvæmdastj óri krefst þess, senda skrifstofu sambandsins skrá yfir verkamenn þá, sem hlut eiga að máli, með fullu nafni og bústað. Enn fremur eru ákvæði um það að senda skuli út undir vissum kringumstæðum lista til félags- manna yfir menn, sem eru í verkfalli. Þá segir, að framkvæmda- stjórnin geti, þegar vinnustöðvun stendur yfir, eða er yfirvofandi, bannað félagsmanni að hafa viðskipti við tiltekna menn, eða á sér- staklega ákveðnum sviðum, svo sem að selja tiltekna vörutegund, og gjört aðrar slíkar ráðstafanir, sem hún telur nauðsynlegar, vegna að- stöðu félagsmanna í vinnudeilum. Ef einhver utan sambandsins vinn- ur á móti hagsmunum félagsmanna, sem eiga í vinnustöðvun, eru félagsmenn skyldir skv. sambandslögunum til að hafa engin viðskipti við hann, meðan á vinnustöðvuninni stendur. Sambandsstjórnin getur samþykkt, að sama skuli einnig gilda, eftir að vinnustöðvun er lokið, annaðhvort um tiltekinn tíma, eða þar til sjálf sambandsstj órnin af- léttir slíku viðskiptabanni. Brot á lögum þessum eða löglega gerðum samþykktum innan félagsins verðar sektum. Geta þær numið allt að hálfri milljón króna fyrir hvert brot. Eins og sjá má af þessu, er miðstjórnarvald Vinnuveitendasam- bandsins yfir félagsmönnum sínum í sambandi við gerð kjarasamn- inga mjög mikið og afmarkað. Vinnuveitendasambandið telur slíkt nauðsynlegt í viðleitni sinni til að samræma kaup og kjör hliðstæðra starfsstétta sem mest um land allt. Til að auðvelda slíka samræmingu hefur Vinnuveitendasambandið þráfaldlega leitað eftir því við Al- þýðusambandið, að það gerði heildarsamninga fyrir félagsmenn sína um allt landið, en hefur fengið þau svör, sem að vísu eru rétt, að að óbreyttum lögum Alþýðusambandsins hafi það ekki vald til að gera slíka samninga, þar sem samningsrétturinn sé í höndum hvers ein- staks verkalýðsfélags. Um uppbyggingu Vinnuveitendasambands Islands út á við vil ég aðeins segja þetta: Samkvæmt lögum og samningum á Vinnuveitenda- sambandið fulltrúa í ýmsum stjórnum og nefndum sem þýðingu hafa fyrir hagsmuni f élagsmanna. Má m. a. nefna: 146

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.