Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Síða 23
arinnar er aS styrkja samvinnu við samtök lögmanna í öðrum löndum og
koma á nýjum samböndum, eftir því sem æskilegt verður talið.
ATHYGLISVERÐUR DÓMUR
var nýlega kveðinn upp í Hæstarétti í máli, þar sem úrskurði stjórnar Lög-
mannafélags islands um endurgjald fyrir lögmannsstörf starfsmanns í stjórn-
arráðinu hafði verið skotið til Hæstaréttar. Stjórn L.M.F.I. hafði komist að
þeirri niðurstöðu, að ágreiningur milli stjórnarráðsstarfsmanns þessa og
stjórnarráðsins ætti ekki undir úrskurð stjórnar L.M.F.I. Þennan skilning sam-
þykkti Hæstiréttur og segir svo í dómi réttarins: „Samkvæmt 1. gr. reglu-
gerðar nr. 32, 10. febrúar 1971, sem sett er samkvæmt heimild í 23. gr. laga
um málflytjendur nr. 61/1942 er lögfræðingum, sem starfa í stjórnarráði
óheimilt að stunda málflytjendastörf, meðan þeir gegna slíkum störfum. Gildir
þetta jafnt þótt viðkomandi lögfræðingur hafi fengið leyfi til málfiutnings
samkvæmt lögum nr. 61/1942. Samkvæmt 2. grein reglugerðarinnar er lög-
fræðingum í opinberu starfi, sem ósamrýmanlegt er málflytjendastarfi samkv.
1. gr. reglugerðarinnar, heimilt að annast málflutningsstörf fyrir stofnun þá,
er þeir vinna hjá. Verður ekki talið, að stjórn Lögmannafélags islands hafi
úrskurðarvald um þóknun fyrir slík störf skv. 8. gr. laga nr. 61/1942. Sam-
kvæmt því ber að staðfesta hinn kærða úrskurð."
Skúli Pálsson
MINNISVARÐI VIÐ BREIÐABÓLSTAÐ
Laugardaginn 22. júlí s.l. safnaðist saman nokkur hópur manna við Vestur-
hópsvatn, þar sem heimreiðin liggur að Breiðabólstað í Vestur-Hópi frá vatn-
inu. Þarna voru samankomnir lögmenn og gestir þeirra. Erindi þessa hóps
þarna við vatnið var að vera viðstaddur afhjúpun minnisvarða, sem Lög-
mannafélag íslands hefur látið reisa á bökkum Vesturhópsvatns í landi
Breiðabólstaðar. Minnisvarða þennan hefur félagið reist nú á 1100 ára afmæli
islandsbyggðar í tilefni þess, að á Breiðabólstað var fyrst gerð heildarskrán-
ing íslenskra laga veturinn 1117—1118.
Athöfnin hófst með því, að formaður Lögmannafélags íslands, Páll S. Páls-
son hrl. ávarpaði gesti, en meðal þeirra voru Benedikt Sigurjónsson forseti
Hæstaréttar og frú, Baldur Möller ráðuneytisstjóri og frú og fulltrúi þjóðhá-
tíðarnefndar 1974, Egill Sigurgeirsson hrl. Páll S. Pálsson rakti í snjallri ræðu
heimildir þær, sem til eru um þann merkisatburð, er islandslög voru fyrst í
letur færð. Einnig rakti hann sögu Breiðabólstaðar og sögu þess höfðingja,
sem að rituninni stóð, Hafliða Mássonar. Ræða formannsins er birt hér á eftir.
Að lokinni ræðu formanns, sem góður rómur var að gjör, fól hann fjög-
urra ára dótturdóttur sinni, Melkorku, að afhjúþa minnisvarðann, sem hún gerði
með prýði.
Þegar minnisvarðinn hafði verið afhjúpaður, kvaddi sér hljóðs fulltrúi þjóð-
hátíðarnefndar, Egill Sigurgeirsson hrl., og flutti Lögmannafélagi íslands
þakkir þjóðhátíðarnefndar 1974 fyrir framtak þess og kvað nefndina fagna
þessari framkvæmd félagsins. Ávarp hæstaréttarlögmanns er einnig birt í
heild sinni hér í blaðinu.
149