Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 27

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Side 27
arjörð sína og flutti vestur á Breiðabólstað til Hafliða, sem við honum tók, og þar var hann prestur lengi síðan. En það var að frumkvæði fyrsta bisk- upsins að Hólum, Jóns Ögmundssonar, sem Þingeyrarklaustur var stofnað, að margir halda árið 1112, enda segir Björn Þorsteinsson sagnfræðingur í ,,Is!enska þjóðveldinu": ,,Ritun laganna norður á Breiðabólstað sýnir best orðstír norðlenskra mennta um þessar mundir.“ Freistandi væri, en hér er hvorki staður né stund til þess, að rekja sögu Breiðabólstaðar í Vestur-Hópi, en hér var löngu síðar annáll ritaður og fleira, né heldur að geta afkomenda Hafliða Mássonar, er varð kynsæll maður. En svo mikið varð fall Breiðabólstaðar sem höfðingjaseturs, að rúmum tuttugu árum eftir fall Hafliða Mássonar árið 1130, var dóttir hans, prestsekkjan Valgerður, orðin einsetukona á Breiðabólstað. Hún átti son, er lllugi hét, sem drukknaði, þá er hann flutti lím til steinkirkju þeirrar, sem hann ætlaði að gera að Breiðabólstað f Vestur-Hópi. Þykir mér hlýða að skiljast eigi svo við þessi ávarpsorð, að minnast eigi þessa atburðar með nokkrum orðum, vegna höfuðstaðarins Breiðabólstaðar, er gnæfði hátt sem slíkur á fyrri hluta 12. aldar. Vitna ég í því sambandi orðrétt til þess, sem Hermann Pálsson segir í bók sinni, „Tólfta öldin“, í kaflanum „Konan á Breiðabólstað": „íslensk höfuðból hafa löngum búið við hverful örlög. Á fyrstu áratugum tólftu aldar er Breiðabólstaður í Vestur-Hópi einhver virðulegasti bær á öllu íslandi, mikið höfðingjasetur. Þar situr hinn voldugi sonur Grikklands- farans við mikla reisn, og þar eru landslögin fyrst á bókfell sett. En um miðja öldina þolir staðurinn hvert áfa'lið eftir annað. Presturinn fellur frá árið 1150, og síðan stórhuga sonur hans, sem ætlar sér að reisa eitthvert veglegasta guðshús á landinu, úr ævarandi steini Vestur-Hóps. Ef hann hefði ekki drukknað í þessari för og hefði honum auðnast að reisa þetta hús hefði byggingarsaga Islands orðið með öðrum hætti en raun ber vitni um. Þá hefði þess skammt orðið að bíða að biskupsstólar, klaustur og stórbýli kæmu sér upp kirkjum og öðrum húsum úr steini. En slíkt átti ekki fyrir Breiða- bólstað að liggja. Steinlímið sökk niður á hafsbotn og með því umbóta- maðurinn lllugi Ingimundarson, og það helsta, sem minnir oss á hverful örlög Breiðabólstaðar um miðja tólftu öld er andlát prestsins þar, drukknun sonar hans og einvera ekkju hans árið 1154.“ En til þess erum vér nú komin saman hér að minnast þess, er reisn Breiðabólstaðar var mest i sögum og Hafliði goðorðsmaður var gestgjafi laganefndarinnar miklu, sem vann afrekið að Breiðabólstað veturinn 1117 —1118. Þá hefur verið gestkvæmt hér, og hinir fróðustu menn, lagasmiðir og lögmenn, er þá voru í nefndinni og kunnu gildandi lög utan að, þegið beina hér og borið saman ráð sín með þeim árangri, sem mun í minnum hafður, meðan island er byggt. Ég viðurkenni, að okkur lögmönnum var mikill vandi á höndum að reisa minnisvarða í tilefni þessa atburðar. Við völdum þá leið, að varðinn skyldi vera stuðlaþergssteinn, áletraður, ættaður úr Gnúpverjahreppi, svo að eigi hallaðist á milli landshluta og til þess að undirstrika það, að varðinn sé ekki reistur fyrir Norðlendinga eða Húnvetninga eina, heldur sem gjöf til þjóð- arinnar allrar, enda eru gefendurnir, starfandi lögmenn á íslandi, nokkuð á annað hundrað að tölu, ættaðir úr öllum landshlutum. Fjórir minni steinar 153

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.