Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Qupperneq 29
Þjóðhátíðarnefnd fagnaði þessari framkvæmd lögmannafélagsins, sem
myndi þannig um ókomin ár verða tengd þessu merkisári og öðrum hátíða-
höldum þjóðarinnar á árinu. Þessi minnisvarði, sem nú er reistur hér eftir
tæp níu hundruð ár, mun enn varpa Ijóma á þjóðhátíðarárið og Lögmanna-
félag íslands, sem að eigin frumkvæði hefur á svo myndarlegan hátt minnt
á einn þýðingarmesta atburð Islandssögunnar — og atburð, sem svo mjög er
tengdur lífsstarfi lögfræðinga landsins, og þeim því kærkomið að minnast.
Það tíðkast nú á þessum síðustu tímum, að tala um það vald, sem sprettur
fram úr byssustingjunum. —
Þá er okkur íslendingum hollt að minnast þess, að víkingar þeir og aðrir
sæfarendur, sem byggðu þetta land í öndverðu, þeir reistu ekki ríki sitt á
eggjum sverðsins, sem þeir voru þó slyngir að beita — heldur stofnuðu
þeir hér ríki byggt á lögum frjálsra manna. ,,Því þeir hafa ekki konung,
heldur aðeins lög“, eins og Adam frá Birmum segir. —
Ég veit það vel, að contra vim non valet jus — að ekki þýðir að ganga á
móti ofbeldismanninum með lögbókina eina að vopni.
Þó var það svo, að íslenska þjóðveldið, reist á lögunum einum, stóð í
næstum hálfa fjórðu öld. Það er langur tími a. m. k. þegar horft er fram á
veginn.
Við skulum vona það og trúa því, að íslenska lýðveldið, sem nú er 30
ára, standi lengur en þjóðveldið gerði —
Við skulum vona það, trúa því og treysta því, að íslenska þjóðin verði
frjáls og sjálfstæð þjóð um alla framtíð. —
Ég vil svo f. h. Þjóðhátíðarnefndar 1974, og ég vona að ég megi segja í
nafni allra islendinga, þakka Lögmannafélagi Islands fyrir það myndarlega
framtak að reisa þenna minnisvarða og tengja þá framkvæmd þjóðhátíðar-
árinu 1974. —
i
155