Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Page 32
þingsályktunartillögur um aö stefna bæri að lagasetningu á tilteknu sviði, og
ennþá væru skipaðar milliþinganefndir, sem falið væri að semja lagafrum-
vörp, þannig að hlutur löggjafasamkomunnar væri allnokkur.
Þá nefndi ræðumaður, að núverandi dómsmálaráðherra, svo og forverar
hans í starfi, hefðu haft áhuga á að stofna sérstaka lagadeild í dómsmála-
ráðuneytinu með svipuðu sniði og tíðkast meðal nágrannaþjóða okkar. Reif-
aði hann, hver verkefnin væru, sem þessum deildum er falið að vinna, svo
og fyrirkomulag þeirra.
Að lokum gat ræðumaður verkefnis, sem verið hefði ofarlega á dagskrá
um alllangt skeið í dómsmálaráðuneytinu, en það væri endurskoðun réttar-
farslöggjafar og dómaskipunar. Þetta væri ákaflega umfangsmikið verkefni
og seinunnið. Mætti t. d. nefna fækkun héraðsdóma í einkamálum, hraðari
meðferð einkamála o. fl atriði, sem nauðsynlegt væri að breyta. Þessu verk-
efni gerði ræðumaður ítarleg skil.
Sökum skamms fundartíma gafst eigi tóm til fyrirspurna að lokinni ræðu
Baldurs Möller, en greinilegur áhugi virtist ríkjandi um að taka síðasta mál-
efni ræðumanns upp til frekari umræðu síðar.
Hjalti Zóphóníasson
FRÆÐAFUNDUR
var haldinn í Lögbergi mánudaginn 9. desember. Umræðuefnið var upplýs-
ingaskylda seljanda í fasteignakaupum, og hafði Sigurður Einarsson cand.
jur. framsögu. Sigurður er fyrsti lögfræðingurinn, sem lýkur embættisprófi
eftir reglugerðarákvæðunum um laganám, er sett voru 1970. í samræmi við
hinar nýju námsreglur samdi hann ritgerð, er nefnist ,,Um stofnun skaða-
bótaábyrgðar seljanda, vegna galla í kaupum um ákveðna eign, lausafé og
fasteign". Það voru kaflar úr þessari ritgerð, sem framsöguerindið á fund-
inum 9 .desember var byggt á. Ritgerðin verður birt í Úlfljóti. Að erindi Sig-
urðar Einarssonar loknu bauð lögfræðingafélagið að vanda til kaffidrykkju,
en síðan fóru fram umræður. Tóku þá til máls Ragnar Aðalsteinsson hrl., dr.
Ragnar Ingimarsson prófessor í verkfræði- og raunvísindadeild Háskólans,
Stefán Már Stefánsson borgardómari, Páll S. Pálsson hrl. og Þór Vilhjálms-
son prófessor, en frummælandi svaraði í fundarlok fyrirspurnum og athuga-
semdum. Fund þennan sátu 32 lögfræðingar og 2 gestir úr verkfræðingastétt.
Þ. V.
158