Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Page 37

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1974, Page 37
DÓMAR ALÞJÓÐADÓMSTÓLSINS UM STÆKKUN FISKVEIÐILÖGSÖGUNNAR Alþjóðadómstóllinn í Haag kvað upp tvo dóma í málum gegn íslandi 25. júlí s.l. Voru það mál vegna stækkunar fiskveiðilögsögunnar, sem Bretland og Sambandslýðveldið Þýskaland höfðu höfðað. Af íslands hálfu var ekki sótt þing í málum þessum og lögsögu dómstólsins mótmælt. Hér verður birt frétta- tilkynning Alþjóðadómstólsins um mál Bretlands. Mál Sambandslýðveldisins Þýskalands var svo svipað hinu breska, að ekki þykir ástæða til að þýða báðar fréttatilkynningarnar. Þó er þess að geta, að I þýska málinu kom fram krafa um, að dómstóllinn lýsti því yfir, að island væri bótaskylt gagnvart Sam- bandslýðveldinu vegna afskipta íslenskra varðskipa af þýskum fiskiskipum. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að hann hefði lögsögu um þessa kröfu. Hins vegar taldi hann hana setta fram á afstæðan hátt og gæti hann ekki kveðið almennt á um bótaskyldu og þar með fjallað um atriði, sem dómstóllinn hefði aðeins takmarkaðar upplýsingar um og litlar sannanir. Fréttatilkynningin um breska málið, sem fer hér á eftir, er þýdd úr UN MONTHLY CRONICLE, 8. hefti 1974: FISKVEIÐILÖGSAGA: BRETLAND GEGN ÍSLANDI Dómstóllinn kveður upp efnisdóm. Skrifstofa Alþjóðadómstólsins hefur sent fjölmiðlum eftirfarandi fréttatil- kynningu: í dag, 25. júlí 1974, kvað Alþjóðadómstóllinn upp efnisdóm í fiskveiðilög- sögumáli Bretlands gegn islandi. Með 10 atkvæðum gegn 4 1) ákvað dómstóllinn, að íslensku reglurnar frá 1972, sem mæltu fyrir um einhliða útfærslu algerrar fiskveiðilögsögu íslands í 50 sjómílur frá grunnlínum, gidi ekki gagnvart Bretlandi; 2) ákvað dómstóllinn, að islandi sé hvorki heimil einhliða útilokun breskra fiskiskipa frá svæðum milli 12 og 50 mílna markanna né einhliða tak- markanir á athöfnum þeirra á siíkum svæðum; 3) áleit dómstóllinn, að islandi og Bretlandi beri gagnkvæm skylda til að halda í góðri trú samningafundi um sanngjarna lausn á ágreiningi þeirra; 4) benti dómstóllinn á ákveðna efnisþáttu, sem skal taka tillit til í þessum samningaviðræðum (forgangsréttindi íslands, söguleg réttindi Bretlands, hagsmuni annarra ríkja, verndun fiskstofna, sameiginlega rannsókn á nauðsynlegum aðgerðum). Dómarar voru Lachs forseti, Forster, Gros, Bengzon, Petrén, Onyeama, Dillard, Ignacio-Pinto, de Castro, Morozov, Jiménez de Aréchaga, Sir Hum- phrey Waldock, Nagendra Singh og Ruda. 163

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.